Það verður engin "niðurstaða" í vikunni

Jóhanna Sigurðardóttir segist vonast til að niðurstaða fáist í Icesave-málinu í vikunni og á þá væntanlega við þessa viku, sem nú er nýhafin, en ekki "eftir helgi" eða í "næstu viku", eins og verið hefur um allar "niðurstöður" ríkisstjórnarinnar fram að þessu.

Þó Jóhanna og ríkisstjórnin öll og jafnvel allur þingheimur samþykki fjárkúgunarkröfur Breta og Hollendinga á hendur íslenskum skattgreiðendum vegna viðskipta einkafyrirtækis, sem þar að auki var rekið af fjárglæframönnum, þá verður það engin "niðurstaða" í þrælasölumálinu, því tilvonandi þrælar Breta og Hollendinga munu aldrei samþykkja að ganga sjálfviljugir í skattaþrældóm fyrir erlenda kúgara.

Þjóðin mun hrinda þessu nútíma "Tyrkjaráni" af höndum sér, jafnvel þó ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir gefist enn einu sinni upp fyrir innrás þrælakaupmanna.


mbl.is Niðurstaða vonandi í vikunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Samfylkingin og VG eiga eftir að sjá til þess að þetta komist aldrei í þjóðaratkvæðagreiðslu, ég vildi að þessi ríkisstjórn gæti asnast til þess að vinna af jafn mikilli hörku fyrir land og þjóð, og þau gera fyrir kúgara okkar Holland, Bretland og ESB.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 6.12.2010 kl. 16:15

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Nágrímur NEI-kvæði sett NEI framar öllu þegar átti að greiða atkvæði um IceSave og NEI-taði að mæta á kjörstað....

Jóhrannar virtist hafa gleymt þ´vi þá og ætlar örugglega að "muna ekki eftir því" núna.

Óskar Guðmundsson, 6.12.2010 kl. 16:20

3 Smámynd: Jón Óskarsson

Svo voru Jóhanna og Steingrímur alveg steinhissa og vonsvikin yfir þátttöku í Stjórnlagaþingskosningunum.   Það er nú einu sinni þannig að eftir höfðinu dansa limirnir og lögðu línurnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni með því að mæta ekki.  Margt vitlaust hef ég séð stjórnmálamenn gera en aldrei vitlausara en það að hunsa kosningar.  Fólk sem á sitt lifibrauð undir því að kjósendur mæti og greiði þeim atkvæði sýndi kjósendum algjöra lítilsvirðingu.  Rétt verður að minna þau skötuhjú á það vel og rækilega við næstu Alþingiskosningar ef þau bjóða sig oftar fram.

Jón Óskarsson, 6.12.2010 kl. 22:04

4 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ágæti Axel - vissulega mun niðurstaða liggja fyrir - sú niðurstaða að engin niðurstaða liggi fyrir - þetta er ferli sem við höfum horft uppá í mörgum málum undanfarin 2 ár.

Er það ekki líka niðurstaða?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 7.12.2010 kl. 06:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband