Nekt og kynlíf alltaf vinsælt

Miðað við "vinsældarlista" frétta á mbl.is í dag er ungt fólk stór hópur lesenda síðunnar, því mest lesna fréttin fjallar um niðurhal á kvikmyndum og það er athöfn sem unga fólkið kann á, en við gömlu brýnin vitum ekkert hvernig á að framkvæma og hvað þá að finna myndir á netinu til að hala niður.´

Í þrem næstu þrem sætum á "vinsældarlistanum" koma blautlegar fréttir, sem þeir eldri hafa gaman af, ekki síður en þeir ungu, en fimmta vinsælasta fréttin fjallar svo um skuldir Símans, sem unga fólkið hefur líklega minni áhuga á, en þeir eldri.

Svona lítur vinsældalisti fréttanna út, þegar þetta er skrifað.

  1. Níu húsleitir vegna ólöglegs niðurhals
  2. Stundaði sjálfsfróun í kvikmyndahúsi yfir Harry Potter
  3. Berbrjósta konur valda usla
  4. Héldu að ég hefði verið í klámmynd
  5. Móðurfélag Símans þarf að greiða 74 milljarða fyrir 2014

Nekt og klám er sívinsælt umfjöllunarefni, ekki síst hjá feministum sem aldrei þreytast á að skoða það, að eigin sögn eingöngu til að geta hneykslast á því.


mbl.is Berbrjósta konur valda usla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Góður pistill!

Björn Birgisson, 2.12.2010 kl. 17:17

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég er sammála Birni að þetta sé góð færsla og pæling!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.12.2010 kl. 17:58

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hmm, ég er gamalt brýni og algjör sérfræðingur í dánlódi. Kannski ætti ég að kenna ykkur gagnlega hluti í verktöku.

Baldur Fjölnisson, 2.12.2010 kl. 19:23

4 Smámynd: Björn Birgisson

Ekki smella á myndina!

Björn Birgisson, 2.12.2010 kl. 19:26

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Úhúúúei Björn þú leynir á þér!

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.12.2010 kl. 20:46

6 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Strááákar%&/(()=(//&%$$///() - Pas på! Þetta er bloggið hans Axels, þið ættuð að gera þetta heima hjá ykkur.

Bergljót Gunnarsdóttir, 2.12.2010 kl. 22:44

7 Smámynd: Björn Birgisson

Heima? ................ og sofa svo í garðinum? Aldrei! Krossinn byði kannski gistingu, en hún yrði sama og þegin!

Björn Birgisson, 3.12.2010 kl. 00:10

8 Smámynd: Björn Birgisson

Ég sagði ekki smella á myndina, hvað er eiginlega að ykkur?

Björn Birgisson, 3.12.2010 kl. 00:12

9 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Björn, á þessu sést að fólk hefur sérstaklega gaman af að gera það sem ekki má.  Engum datt í hug að smella á myndina fyrr en þú baðst fólk alveg sérstaklega að gera það ekki.

Á maður kannski á hættu að fá eftirlitið í heimsókn og kröfu um stórar greiðslur fyrir niðurhal, vegna þessa prakkaraskapar þíns?

Axel Jóhann Axelsson, 3.12.2010 kl. 08:31

10 Smámynd: Björn Birgisson

 !

Björn Birgisson, 3.12.2010 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband