Helgin í rólegri kantinum og fáar nauðganir

Nú um Verslunarmannahelgina, þegar allir eiga frí og skemmta sér, nema verslunarmenn, hefur allt gegnið eins og vera bera um þessa miklu hátíðahelgi.  Mikið hefur verið um fyllerí, dópneyslu- og sölu, ölvunarakstur og skemmdir á bílum, tugir líkamsárásarmála, fáeinar nauðganir og helgarendir með roki og rigningu.

Mótshaldarar og lögreglan eru yfir sig ánægð með framgang mála um helgina og þakka mótsgestum sérstaklega og innilega fyrir að ekkert alvarlegt skyldi koma uppá, en framangreind atriði þykja hreinir smámunir, enda enginn drepinn og nauðganirnar og líkamárásirnar varla til að hafa orð á.  Þetta þykir Verslunarmannahelgi í rólegri kantinum og allir eru glaðir og ánægðir, enda eru venjulegar helgar, t.d. í miðborg Reykjavíkur stundum skrautlegri að þessu leyti en stórar útihátíðir, þar sem flestir eru samankomnir til að skemmta sér og sínum á eðlilegan og friðsaman hátt.

Í dag er hinn eiginlegi frídagur verslunarmanna og er þeim óskað til hamingju með daginn, þrátt fyrir að margir þeirra hafi ekkert frí átt um helgina og séu einnig að vinna í dag í þjónustustörfum fyrir hina, sem geta nýtt sér fríið til upplyftingar og skemmtunar.

Komi ekkert sérstakt uppá í dag, verður þessarrar Verslunarmannahelgar minnst fyrir óvenjulega rólegt fyllerí og fáar nauðganir.


mbl.is Tjöld fjúka í Herjólfsdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafa ber í huga að "fáar nauðganir" eru alltof margar.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 2.8.2010 kl. 13:18

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Að sjálfsögðu er ein nauðgun einni of mikið og það sama gildir um líkamsárásarmálin.

Slík mál eru orðin svo "venjuleg" í þjóðfélaginu, að fólk virðst vera hætt að kippa sér upp við fréttir af slíkum málum, að það er eins og að það taki því varla að minnast á þau lengur.

Axel Jóhann Axelsson, 2.8.2010 kl. 13:22

3 identicon

Eitthvad örlitid meira en í fyrra en thà voru svo fàir midad vid núna. Rokid sér svo um tjöldin sem gestir skilja eftir. Gæti ekki verid betra.

Gledilega hàtíd.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 2.8.2010 kl. 15:27

4 Smámynd: Ellert Júlíusson

Skemmtileg færsla og gaman að lesa háðið á milli línanna!

Ellert Júlíusson, 2.8.2010 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband