Jarðarbúar varasamastir?

Stephen Hawking, breskur stjarneðlisfræðingur, varar við tilraunum til að hafa samband við lífverur á öðrum hnöttum, vegna þess að hætta gæti verið á að þær myndu nýta jörðina sem nýlendu og ræna hana öllum auðæfum.

Þetta er reyndar hugsunarháttur, sem ríkt hefur á jörðinni í árhudruð og voldug ríki stundað skefjalaust að gera önnur, sem veikari eru fyrir, en þó rík af náttúruauðlindum og vinnuafli, að nýlendum sínum og arðrænt miskunnarlaust.  Þó þetta heyri nú að sumu leyti fortíðinni til, eymir þó ennþá eftir af þessu hjá stórþjóðum og er tilraun Breta og Hollendinga til að gera Ísland að skattanýlendu sinni síðasta dæmið um nýlendukúgun.

Hawking segir m.a:  „Við þurfum ekki að líta lengra en í eigin barm til að sjá hvernig vitsmunalíf gæti þróast í eitthvað sem við viljum ekki eiga samskipti við."

Líklega svara lífverur annarra hnatta engum boðum frá jörðinni einmitt vegna óttans um að jarðarbúar myndu undiroka hnetti þeirra sem nýlendur í sína þágu.

Það væri alveg örugglega ekki ástæðulaus ótti.


mbl.is Geimverur geta verið varhugaverðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hélt að það hefðu verið „aliens“ frá Íslandi, sem fóru rænandi og ruplandi um Evrópu með forseta ræfilinn í broddi fylkingar.

Did I miss something?

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 25.4.2010 kl. 14:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Íslenskir bófar fóru rænandi um Evrópu og fyrir það ætla Bretar og Hollendingar að hefna, með því að gera íslensku þjóðina að skattaþrælum sínum.  Það er hrein nýlendustefna af gamla skólanum.  Skattgreiðendur á Íslandi áttu engan þátt í þessum þjófnaði og hann var ekki framinn á hennar vegum, eða í hennar nafni.

That's what you are missing, svo spurningunni sé svarað á sama tungumáli og hennar er spurt, þ.e. máli nýlendukúgaranna.

Axel Jóhann Axelsson, 25.4.2010 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband