Mikilvægt að kynna lagalega stöðu málsins

Nú þegar fjölmiðlamenn víða að úr heiminum eru samankomnir hérlendis til þess að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn, er mikilvægt að stjórnvöld og aðrir kynni vandlega lagalega hlið Icesavemálsins til þess að sá misskilningur leiðréttist að Íslendingar ætli ekki að standa við "alþjóðlegar skuldbindingar" sínar.

Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands varðandi Icesave felast í því einu, að hafa sett lög um Tryggingasjóð innistæðueigenda og fjárfesta, sem er sjálfseignarstofnun og bankarnir keyptu sér tryggingar hjá, eins og hverju öðru tryggingafélagi.  Tryggingin sem bankarnir keyptu hljóðaði upp á það, að sjóðurinn myndi tryggja hverjum innistæðueiganda að lágmarki 20.887 evra greiðslu, færu bankarnir á hausinn og samkvæmt tilskipunum ESB er í raun bannað að veita slíku tryggingafélagi ríkisábyrgð á skuldbindingum sínum.

Nú þegar tryggingasjóðurinn er í raun gjaldþrota og getur ekki staðið við útgreiðslu á lágmarkstryggingu vegna Icesave reikninganna, á sjóðurinn forgangskröfu í þrotabú landsbankans, en ekki á íslenska skattgreiðendur.  Smátt og smátt mun sjóðurinn fá sínar greiðslur frá þrotabúinu og geta þar með lokið við að greiða út þá fjárhæð, sem Landsbankinn var búinn að kaupa sér tryggingu fyrir.  Eftir því verða Bretar og Hollendingar að bíða, en geta ekki gert íslenska ríkisborgara að skattaþrælum sínum, vegna fáráðlegs rekstrar einkabanka.

Þetta þarf að útskýra vel fyrir hinum erlendu fjölmiðlamönnum, en óvíst er að fulltrúar ríkisstjórnarinnar séu þeir réttu til þess, miðað við ræfildóminn í kynningarmálunum fram að þessu.


mbl.is Mikill áhugi erlendra miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Axel

Já það er spurning hver getur sagt sannleikan ekki veit stjórnin hvað sannleikur er það er spurning hvort einhver úr stjórnar andstöðunni kann með sannleikann að fara og tali skírt fyrir þjóðina.

Jón Sveinsson, 4.3.2010 kl. 14:01

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það er alveg spurning hvort nokkur stjórnmálamaður sé heppilegur í hlutverkið.  Líklega væri best að tefla fram helstu lögspekingum þjóðarinnar, sem mikið hafa varið málstað Íslendinga gegn ofsóknum Breta og Hollendinga. InDefence hefur líka staðið sig vel í baráttunni og svo væri hægt að benda á nokkra aðila, sem blogga hérna á mbl.is reglulega.

Axel Jóhann Axelsson, 4.3.2010 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband