InDefence talar máli þjóðarinnar - ríkisstjórnin ekki

Ríkisstjórnin rembist nú eins og rjúpan við staurinn við að ná nýjum "samningi" við Breta og Hollendinga til þess að geta, að kröfu fjárkúgaranna, fallið frá þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem lög frá Alþingi gera ráð fyrir að fari fram, eigi síðar en 6. mars n.k.

Einnig hamast ráðherrarnir og taglhnýtingar þeirra við að tala atkvæðagreiðsluna niður, m.a. með því að segja hana marklausa, vegna þess að á borðinu liggi "betri samningur".  Atkvæðagreiðslan snýst hinsvegar ekki um "betri" eða "verri"  samning, heldur snýst hún um að staðfesta eða hafna lögum um ríkisábyrgð á "versta samning lýðveldissögunnar", en þau lög voru samþykkt á Alþingi 30. desember s.l., en forseti vísaði til þjóðarinnar til staðfestingar, eða höfnunar.

Þegar til landsins flykkjast erlendir fjölmiðlamenn til þess að fylgjast með þessum sögulega atburði, sem atkvæðagreiðslan er, verður það að teljast með ólíkindum, að ríkisstjórnin skuli ekki nota tækifærið til þess að koma málstað Íslands á framfæri og útskýra fjárkúgun ofbeldisseggjanna bresku og hollensku í leiðinni.

Sem betur fer, eru þó félagarnir í InDefence óþreytandi við kynningu á réttindum íslenskra skattgreiðenda og þeim bolabrögðum, sem kúgararnir reyna að beita við að hneppa þjóðina í skattalegan þrældóm til næstu áratuga til greiðslu vaxta, sem eru þeim óviðkomandi.

Þökk sé InDefence fyrir þeirra framgöngu, en því meiri er skömm ríkisstjórnarinnar og skósveina hennar.


mbl.is Mikill áhugi erlendra fjölmiðla á þjóðaratkvæðagreiðslunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband