Skilningur á málstað Íslands

Íslenska ríkisstjórnarnefnan hefur fram að þessu ekki lift litla fingri, til þess að kynna málstað Íslendinga í Icesavemálinu erlendis, enda hafa bæði fréttamiðlar og almenningur algerlega ranga mynd af því um hvað málið snýst.

Með þessu algera framtaksleysi sínu í kynningarmálum erlendis, hefur stjórnarnefnan stórskaðað málstað landsins erlendis, þar sem bráðnauðsynlegt hefði verið, að kynningarmálin væru vel skipulögð og í stöðugri umfjöllun.

Það sýnir sig núna, eftir að málið er komið í mikinn hnút, að hægt er að koma upplýsingum í erlenda fjölmiðla, svo eftir sé tekið, með róttækum aðgerðum og þjóðin væri nú í betri málum, ef að kynningarstarfinu hefði verið unnið markvisst frá upphafi.

Eftir þá athygli, sem nú beinist að landinu, vegna synjunar forsetans á staðfestingu breytingarlaganna við fyrirvarana á ríkisábyrgð á skuldum Landsbankans, er áríðandi að kjósendur standi saman og felli lögin úr gildi, með afgerandi meirihluta.  Það er besta leiðin í stöðunni til þess að knýja Breta og Hollendinga til samninga að nýju, sem myndu leiða til skárri niðurstöðu, en þann þrælasamning, sem nú liggur fyrir.

Þjóðaratkvæðagreiðslan má alls ekki snúast upp í hatursuppgjör ríkisstjórnarinnar og Ólafs Ragnars.


mbl.is Ekki setja Ísland í skuldafangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Axel þar er ég samála þér og hef bent á það í mínu bloggi.

Sigurður Haraldsson, 7.1.2010 kl. 09:45

2 identicon

Við getum þakkað þetta þjóðinni sem var staðráðin í að láta ekki troða upp á sig ömurlegum samningi! Við stóðum í lappirnar sem þjóð og það vekur athygli og jafnvel smá virðingu sem er dálítið annað en ríkisstjórnin hefur gert sem vildi helst samþykkja allt helv.... draslið óséð! Nú þarf bara að fella samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslunni - ef hún verður!

Soffía (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband