Bloggfærslur mánaðarins, október 2010

Ríkisstjórn og þing skilningslaus á atvinnuleysisvandann

Atvinnuleysi mælist nú 6,4%, þar sem 11.400 manns eru á atvinnuleysisskrá, en það segir reyndar ekki nema hluta sögunnar, þar sem margir eru fallnir út af skránni vegna atvinnuleysis í meira en þrjú ár og a.m.k. 10.000 manns, sem voru á vinnumarkaði hafa snúið sér að námi eða eru flutt úr landi í atvinnuleit.  Því er þessi uppgefna tala um atvinnuleysi ekki upplýsingar um raunverulega töpuð störf, heldur aðeins frásögn af því hve margir eru að fá greiddar atvinnuleysisbætur um þessar mundir.

Ríkisstjórnin og þingmeirihluti hennar hefur ekki nokkurn skilning á því, að atvinnumálin eru undirstaða allrar uppbyggingar og framfara í landinu og ekki síst verður ekkert velferðarþjóðfélag byggt upp nema kröftugt atvinnulíf dafni í landinu.  Eina ráð ríkisstjórnarinnar í kreppunni er ítrekað skattahækkanabrjálæði á fyrirtæki og einstaklinga, sem þegar eru að kikna undan ástandinu og geta engum álögum á sig bætt, enda fækkar raungreiðendum stöðugt vegna gjaldþrota fyrirtækja og upplausnar heimila.

Alþingi, eins og ríkisstjórnin,  hefur greinilega öðrum hnöppum að hneppa en að hafa áhyggjur af atvinnumálunum, því ekki má gleyma stórmálum sem afgreidd hafa verið undanfarna mánuði, svo sem bann við ljósabekkjanotkun unglinga og súludans á nektarbúllum.

Og nú er þingið upptekið við að ræða tillögu nokkurra þingmanna um kjarorkulaust Ísland.  Eins og gefur að skilja, komast ómerkilegri mál ekki á dagskrá á meðan slík stórmál eru óafgreidd.


mbl.is 6,4% atvinnuleysi í haust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður kosning til stjórnlagaþings tómt klúður?

Nú er það komið á hreint að 523 einstaklingar gefa kost á sér til setu á stjórnlagaþinginu og þar af eru aðeins um það bil þriðjungurinn konur, sem eftir sem áður eiga að hafa um það bil helming þingfulltrúa.  Það hlýtur að þýða að atkvæði greidd kvenfólkinu gilda helmingi meira en atkvæði greidd karlmönnunum og verður það að teljast einkennilegt jafnrétti, ekki síst þar sem krafan um jöfnun atkvæða vegna Alþingiskosninga verður æ háværari og einnig að landið allt verði gert að einu kjördæmi, einmitt til að tryggja þá jöfnun atkvæða.

Einnig hafa ýmsir sett fram kröfu um að í öllum kosningum fari fram persónukjör og jafnvel að heimilt verði að kjósa fólk af mörgum listum og sumir hafa jafnvel krafist þess að alls ekki verði boðnir fram neinir listar, heldur verði um algera einstaklingskosningu að ræða, með svipuðu eða eins sniði og kosningin til stjórnlagaþingsins mun verða.

Ef kjósendur eyða tíu mínútum að meðaltali til að kynna sér hvern frambjóðanda til stjórnlagaþings og áherslur hans í sambandi við stjórnarskrárbreytingar, mun það taka 87 klukkustundir í allt og verður að telja að tíu mínútna skoðun á frambjóðendum og stefnuskrám þeirra vegna svona mikilvægs máls eins og stjórnarskráin er, sé í raun allt of skammur tími og þyrfti að vera að minnsta kosti helmingi meiri.

Þá væri það fullt starf með átta stunda vinnudegi í heilan mánuð að ákveða sig hverja kjósa skuli í kosningunni og eins að reikna út hvernig atkvæðið nýtist með tilliti til þess ójöfnuðar kynjahlutfallanna, sem í kosningareglunum felast.


mbl.is 523 í framboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur lúrir á gögnum um Írak, en vill ekkert segja

Mikið hefur verið rætt og ritað um þátttöku Íslands á lista yfir "viljugar þjóðir", þ.e. þær þjóðir sem studdu innrás í Írak á sínum  tíma og hvernig að samþykkt þeirrar þátttöku var staðið á sínum tíma.  Látið hefur verið í það skína, að málið sé svo dularfullt að sérstaka rannsóknarnefnd þurfi að setja í málið og nauðsynlegt að hún hafi nánast saksóknaraumboð, enda látið eins og málið sé svo dularfullt og gruggugt, að það geti jafnvel talist landráð.

Nú allt í einu upplýsir Össur Skarphéðinsson að til séu heilmiklar skriflegar upplýsingar í Utanríkisráðuneytinu um aðdraganda málsins, eða eins og haft er eftir honum í fréttinni: 

"Það kæmi hins vegar á óvart, að meira væri til af upplýsingum en áður hefði verið talið og þær vörpuðu ljósi á það hvernig ákvörðunin hefði verið tekin og hvaða hagsmunir lágu til grundvallar. Einnig væri ljóst að ákvörðunin hefði ekki verið tekin með lýðræðislegum hætti.

Þá sagði Össur, að samtöl hefðu farið fram á milli bandarískra og íslenskra embættismanna í aðdraganda þessarar ákvörðunar.  „Það var auðvitað ljóst að Bandaríkin sóttu mjög fast að fá Ísland á þennan lista," sagði Össur."

Er Össur virkilega að gefa í skyn að hann og aðrir hafi haldið að ákvörðunin hafi verið tekin án alls samráðs við Bandaríkjamenn og íslensku ráðherrarnin hafi bara samþykkt viljayfirlýsinguna að fyrrabragði og Könunum algerlega að óvörum?  Kemur virkilega á óvart að til séu skrifleg gögn í ráðuneytinu um samskipti þjóðanna vegna þessa?  Eru engin skrifleg gögn til um það sem Össur hefur verið að gera í ráðuneytinu frá því að hann tók við embætti utanríkisráðherra.

Allt þetta þarf Össur að upplýsa um leið og hann upplýsir hvað þessi skriflegu gögn frá fyrri tíð innihalda, hvaða samtöl áttu sér stað milli embættismanna þjóðanna og hvaða hagsmunir lágu til grundvallar ákvörðuninni.  Það myndi væntanlega spara heila rannsóknarnefnd, fyrst Össur liggur á öllum gögnum um málið.

Össur hefur þegar upplýst að gögnin séu til og nú kemst hann ekki hjá því að upplýsa um innihaldið.


mbl.is Lögðu áherslu á að Ísland styddi hernað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Gnarr? Hverjum er ekki orðið sama?

Mogginn vitnar í dag í skrif Jóns Gnarrs frá árinu 2005 um kristinfræðslu í skólum, sem honum þótti þá jafn sjálfsögð og að fólk ástundaði heilbrigt mataræði.  Fyrir þessum fimm árum sagðist þessi núverandi óhæfi borgarstjóri ekki skilja hver gæti sett sig upp á móti kristinfræðikennslu í skólum.

Fimm árum síðar er það sá sami Jón Gnarr og fylgifiskar hans, sem leggja fram tillögu um að gera allt sem minnir á kristna trú útlæga úr skólum borgarinnar og er það gert undir yfirskini hlutleysis gagnvart trúarbrögðum, en er ekkert annað en árás á menningararf þjóðarinnar og þau siðferðilegu viðhorf sem sjálft þjóðfélagið er grundvallað á.

Jón Gnarr gaf sig út fyrir að vera kaþólskan í nokkur ár og tók þá meðal annars að sér að reka bókaverslun safnaðarins, en sagði svo í sjónvarpsviðtali eftirá að þetta hefði allt verið í gamni gert og fyrst og fremst verið gagnöflun fyrir handrit að skemmtiefni.  Svipað lét hann út úr sér í þætti á Stöð 2 fyrir skemmstu, þegar hann sagðist nú þegar vera kominn með efni í heilan skemmtiþátt eftir aðeins þriggja mánaða veru í "starfi" borgarstjóra og sagðist vonast til að verða kominn með efni í heila "seríu" að kjörtímabilinu loknu.

Nú hefur hann komið mestu af starfsskyldum borgarstjóraembættisins yfir á "varaborgarstjórann" og hefur því nú nánast allan "vinnudaginn" til þess að semja handrit að gamanseríunni sinni, sem hann ætlar að vinna til sýninga að loknu kjörtímabilinu, enda reiknar hann ekki með endurkjöri, frekar en að nokkrum öðrum detti slík firra í hug.

Er ekki annars öllum orðið sama um Jón Gnarr og vitleysurnar sem einkenna öll hans "störf" síðan hann tók við borgarstjóraembættinu, sem hann lætur svo aðra sinna, enda algerlega óhæfur til þess sjálfur?

 


mbl.is Jón Gnarr fylgjandi kristinfræðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. er harðasti rukkarinn

Við setningu Alþingis sagði Jóhanna Sigurðardóttir að bankarnir hefðu dregið lappirnar vegna samninga við skuldara og undir það tók Steingrímur J. og bætti um betur með stóryrðum um stjórnendur bankanna og slóðaskap þeirra við að vinna með þau úrræði sem ríkisstjórnin hefði af mannkærleik sínum skammtað skuldugustu heimilum landsins.

Á það var þá strax bent að sá innheimtumaður, sem engin grið gæfi í innheimtum og neitaði algerlega að semja um eftirgjöf, eða niðurfellingu skulda, væri Steingrímur J. sjálfur, eða umboðsmenn hans, sem gegna innheimtustörfum fyrir ríkissjóð.

Þetta staðfestir einstæð móðir, sem var í námi sem hún hrökklaðist úr vegna ósveiganleika innheimtumanna ríkissjóðs í hennar fjárhagserfiðleikum, en skatturinn og LÍN kröfðust uppboðs á íbúð hennar, en allir aðrir lánadrottnar hennar voru tilbúnir til samninga um kröfur sínar.

Í tölvubréfi konunnar til þingmanna segir m.a:  „Ef alþingismönnum er í raun alvara með því að koma til móts við skuldsettar fjölskyldur í stórum vanda þá má kannski byrja á að líta til eigin krafna ríkisstofnanna sem eru að nauðbeygja fólk og krefjast nauðungarsölu. Innheimtuaðgerðir ríkisins sjálfs er þær sem engan grið gefa.“

Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um þessa innheimtuhörku Steingríms J. og undirmanna hans, hefur hann ekki hreift legg eða lið til að liðka til fyrir þeim sem í vanskilum eru við ríkisstofnanir.  Jafnvel þeir sem leitað hafa eftir sértækri skuldaaðlögun hafa komið að algerlega harðlokuðum dyrum hjá undirmönnum Steingríms J. og á því hefur öll aðstoð strandað.

Ekki er nóg með að Steingrímur J. sé harðsvíraðasti rukkari landsins, heldur er hann einnig sá falskasti, þar sem hann reynir að kenna öllum öðrum en sjálfum sér um að ekkert skuli ganga við úrlausn þeirra skuldsettustu, sem engan veginn geta ráðið við skuldasúpu sína.


mbl.is Gat ekki samið við LÍN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt afrek

Kvennalið Gerplu í hópfimleikum náði þeim stórkostlega árangri að verða Evrópumeistari í íþrótt sinni og er þetta einhver glæsilegasti árangur, sem íslenskt lið hefur náð í hópíþróttum.  Einnig náði landslið stúlkna í fimleikum þriðja sæti í keppni landsliða og er það einnig glæsileg frammistaða.

Oft hefur verið heilmikið tilstand á Keflavíkurflugvelli við heimkomu íslendinga, sem náð hafa góðum árangri á stórum íþróttamótum og að þessu sinni ætti móttökuathöfnin að vera með glæsilegra móti, vegna þessa einstæða árangurs og þeirra geysilega miklu framfara, sem orðið hafa í fimleikum hér á landi á undanförnum árum.

Slíkur árangur næst ekki, nema með þrotlausum æfingum, miklum áhuga og fórnum í þágu íþróttarinnar.  Það er enginn hægðarleikur að komast í fremstu röð í Evrópu, að ekki sé talað um heiminn allan, og slíkum árangri, sem þessum, verður ekki náð, nema með mikilli vinnu og fyrirhöfn,  stúlknanna sjálfra, þjálfaranna, fjölskyldanna og félaganna, sem þær æfa hjá.

Til hamingju stelpur með þennan frábæra árangur.  Til hamingju Ísland, með að eiga svona frábærar stelpur.


mbl.is Forsætisráðherra samfagnar fimleikakonum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átakanlegur veruleiki stríðsátaka

Fréttir, sem nú birtast upp úr skýrslum Bandaríkjahers, sem Wikileaks birti opinberlega fyrir nokkrum dögum og lýsa grimmilegum pyntingum írakska hersins á handteknum hryðjuverkamönnum og hylmingum Bandaríkjamanna með þeim, lýsa enn og aftur þeim viðbjóði, sem fylgir hernaðarátökum hverskonar og virðist vera sama hver á í hlut.  Enginn virðist öðrum betri í þeim efnum að fremja alls kyns glæpi og ofbeldisverk í nafni ættjarðarinnar og meintrar ástar á henni og hagsmunum þeirra þjóða, sem í hlut eiga.

Ekki þarf þó að líta til austurlanda eftir slíkum glæpum, því ekki eru svo mörg ár síðan svipaðir stríðsglæpir voru framdir af öllum hlutaðeigandi í stríði í miðri Evrópu, það sem aðalmarkmiðið var að útrýma öllum þeim, sem voru af öðrum kynþætti eða trú, en þeim sem í meirihluta var á hverju svæði fyrir sig.  Lítið lengra er síðan milljón manns var slátrað á djöfullegan hátt í Rúanda og enn berast fréttir af hryllilegum aðgerðu stríðandi aðila í mörgum Afríkuríkjum.

Mannslíf eru ekki mikils metin í mörgum löndum og víða tíðkast að fólk sé dæmt til húðstrýkinga, handarhöggs, henginga eða lífláts á annan hátt, jafnvel að undangengnum pyntingum.  Þegar slíkar refsingar eru samkvæmt lögum viðkomandi ríkja, er varla við öðru að búast en hinu versta, þegar slíkar þjóðir standa í stríðsaðgerðum gegn öðrum löndum og jafnvel eigin íbúum.

Öll stríð eru af hinu illa og þau leiða, eins og sagan sýnir, til alls kyns illverka og glæpa og því verður að fordæma slíkt athæfi með öllum ráðum, í þeirri veiku von að hálfbrjálaðir stríðsmenn og stjórnendur þeirra láti af slíku athæfi og reyni frekar að leysa málin á friðsamlegan hátt.

Ekki er heldur djúpt á villimanninum í Íslendingum, eins og nýlegar tilraunir til líkamsmeiðinga á þingmönnum og ráðherrum sýna, í tengslum við mótmæli gegn stjórnvöldum hérlendis.  Þó ekki sé beinlínis hægt að líkja slíkum aðgerðum við stríðsglæpi, þá sýna þær þó hve grunnt er í villimanninn og hve lítið þarf til að vekja hann af dvala og til óhæfuverka.


mbl.is Ótrúlega alvarlegar skýrslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feitu karlarnir eru hálfgerðar lesbíur

Í tilefni helgarinnar, þegar fólk hópast á skemmtistaðina í leit að ból- eða ævifélaga, er rétt að minna á fréttina af því, að feitu karlarnir eru miklu betri í bólinu en beinasleggjurnar.  Þetta er nú vísindalega sannað í Tyrklandi, af öllum löndum, en þar hefur sáðlátstími karlpenings af ýmsu holdarfari verið vísindalega mældur og engin ástæða til þess að draga nákvæmnina í efa.

Helsta niðurstaða rannsókna Tyrkjanna er þessi:  "Meðalþrautseigja þeirra grönnu var aðeins rúmlega hálf önnur mínúta. En bumbukarlarnir héldu út í rúmar sjö mínútur."  Með þessu er árhundraða misskilningi eytt í eitt skipti fyrir öll, en í gegnum tíðina hefur kvenfólk frekar laðast að þeim beinaberu, en kyntröllin hafa oftast orðið að láta sér nægja "næst sætustu stelpuna á ballinu" eins og einn þjáningabróðir okkar fituklessanna orðaði þetta vandamál svo snyrtilega um árið.

Það eina sem skyggir á niðurstöðu þessarar merku rannsóknar er skýringin á því hvers vegna við, þessir feitu, erum svona miklir afbragðselskhugar, en hún er þessi:  "Munurinn stafaði ekki af því þeir feitu væri slappir og lengi að koma sér í gang, sögðu vísindamennirnir. En þéttvaxnir hafa í sér meira af kvenhormóninu estradiol sem seinkar fullnægingu."

Niðurstaðan er því eiginlega sú, að við hlunkarnir séum bara kerlingar.  Það sem verra er, bara hálfgerðar kerlingar, sem leiðir til þeirrar hundleiðinlegu niðurstöðu fyrir okkur, að sennilega er langbest fyrir kvenfólkið að vera bara lesbískt.


mbl.is Bólfimir bumbukarlar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein árás ríkisstjórnarinnar á velferðarkerfið

Fyrsta "hreina vinstri stjórnin" í landinu, sem kennir sig við "norræna velferð" lýsti því sem sínu helsta stefnumáli að standa vörð um það heilbrigðis- og skólakerfi sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði byggt upp á valdatíma sínum og sérstaklega ætlaði "norræna velferðarstjórnin" að standa dyggan vörð um það velferðarkerfi, sem byggt hafði verið upp af miklum metnaði á tíma Sjálfstæðisflokksins í ríksisstjórnum undanfarinna ára.

Núna þegar fjárlög hafa verið lögð fram, sést að uppbyggingu þessara kerfa á að rústa á einu ári, þ.e. strax á árinu 2011, en hins vegar eru fjárlögin svo illa undirbúin, að hver stjórnarþingmaðurinn á fætur öðrum hefur lýst sig andvígan þeim og jafnvel sumir ráðherrarnir einnig og boða víðtækar breytingar við aðra umræðu um lögin í desemberbyrjun.

Enginn hefur þó gagnrýnt ríkisstjórnina eins harðlega og verkalýðsforystan og nægir í því efni að vitna í niðurlag meðfylgjandi fréttar um það sem Gylfi Arnbjörnsson sagði á þingi ASí um hluta af þeim niðurskurði sem verst mun bitna á þeim tekjulægstu í þjóðfélaginu: 

"Í febrúar 2008 samdi ASÍ við stjórnvöld um 45% hækkun húsaleigubóta og að húsaleigubætur fylgdu verðlagi eftir það. „Nú á að fella niður framlögin vegna þeirrar hækkunar. Þetta felur í sér 30% lækkun. Það er alveg ljóst að þetta mun verða reiðarslag fyrir fátækt fólk,“ segir Gylfi.

Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, varaði við því á ársfundi ASÍ, í gær að framlög til húsaleigubóta yrðu lækkuð."

Varla er hægt að flokka þessi ummæli undir einhvern áróður hægri manna gegn "norrænu velferðarstjórninni".


mbl.is Framlög til húsaleigubóta lækka um milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómennsk framkoma Besta flokksins

Allir geta verið sammála um að hagræðingar og sparnaðar hafi verið þörf í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur og jafnvel að þurft hafi að fækka starfsmönnum, fyrst stjórnarmeirihlutinn treysti sér ekki til að dreifa þeim sparnaði á sem flesta starfsmenn með minnkuðu starfshlutfalli hvers og eins, eins og tillaga kom fram um að gera.

Aðferðin við þessa harkalegu sparnaðaraðgerð Besta flokksins og þeirra, sem samábyrgir eru fyrir gjörðum hans, er hins vegar algerlega óviðunandi, enda ómannúðleg í alla staði, eða eins og Júlíana Guðmundsdóttir, trúnaðarmaður hjá OR lýsir aðgerðinni:  "Okkur var smalað saman og sagt að okkur væri öllum sagt upp störfum. Einn starfsmaður lá að vísu á sjúkrahúsi, en honum var líka sagt upp. Öðrum, sem er 62 ára gamall og búinn að vinna hjá OR í 37 ár, var þá sagt upp." 

Þessi mannvonskulega smölun átti sér stað um eittleytið í gær og fólkið fékk þrjá tíma til að kveðja samstarfsfólk sitt og ganga frá sínum málum á vinnustaðnum og klukkan fjögur síðdegis hættu öll aðgangskort þessa fólks að vinnustaðnum að virka og verður engum þessara starfsmanna hleypt inn í húsið framar, nema undir eftirliti, þó á fjórða mánuð sé í að uppsagnarfresti þess ljúki.

Svona stendur enginn að uppsögnum starfsmanna, sem snefil hefur af mannlegum tilfinningum og skilning á því hvílíkt áfall það er fyrir starfsfólk að vera sent út á guð og gaddinn eftir áratugastarf hjá sama vinnuveitanda.

Hafi Besti flokkurinn og aðrir stjórnendur OR skömm fyrir framkomu sína.


mbl.is „Fólkið auðvitað bara grét“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband