Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Farðu nú að semja nýja ræðu, Jóhanna

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherralíki, ávarpaði fund sóknaráætlunar 20/20, sem er sýndarnefnd á vegum ríkisins, og flutti þar sömu ræðuna og hún er búin að flytja ótal sinnum á undanförnum mánuðum.

Kjarninn í ræðunni er þessi:  „Við erum að glata dýrmætum tíma og tafir á framkvæmd efnahagsáætlunar Íslands og AGS, frestun á áætlun um afnám gjaldeyrishafta og takmarkanir á aðgengi Íslands að alþjóðlegum gjaldeyrismörkuðum munu verða okkur afar dýrkeypt ef fram heldur sem horfir"

Einnig fylgdi þetta með:  "Ljóst er að óvissa í efnahagsmálum hefur aukist vegna frestunar á því að leysa deiluna um bætur til innistæðueigenda útibúa Landsbankans erlendis."  Nú heitir það að leysa deiluna um bætur, en ekki greiðslu á "alþjóðlegum skuldbindingum" Íslendinga og er þetta orðalag eina tilbreytingin frá fyrri ræðum.

Það er ekki fyrst og fremst "deilan um bætur", sem tafið hefur allar efnahagsumbætur hérlendis, heldur aðgerðarleysi ríkisstjórnarnefnunnar sjálfrar og sú staðreynd, að hún hefur gert allt sem í hennar valdi hefur staðið, til að koma í veg fyrir þá atvinnuuppbyggingu, sem kostur hefur verið á, allt undanfarið ár og sér ekki fyrir endann á þeirri skaðlegu framgöngu ennþá.

Þær litlu framkvæmdir sem ríkið hefur ætlað að ráðast í, hafa tafist vegna hringlandaháttar og nægir þar að nefna staðsetningu samgöngumiðstöðvar, sem dæmi.

Jóhanna þarf að láta semja handa sér nýja ræðu og hún og félagar hennar í ríkisstjórnarnefnunni, að fara að hugsa um fleiri mál en Icesave, enda á það ekki að vera neitt forgangsmál, því það ætti nánast ekki að koma ríkissjóði nokkuð við.

Jóhanna getur ekki afsakað ræfildóminn endalaust með Icesaverugli.


mbl.is Jóhanna: Vextir lækka en óvissa eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbreyttur hópur gegn Frökkum

Á morgun verður háður einhver afdrífaríkasti handboltaleikur sögunnar, þar sem Íslendingar mæta Frökkum í undanúrslitum EM.

Frakkar eru nú heims- og Ólimpíumeistarar og eru áfjáðir í að bæta Evrópumeistaratitlinum við og veraða þannig fyrstir karlalandsliða til að hampa öllum titlunum þrem á sama tíma.  Þeir munu því koma til leiksins á morgun fullir eldmóðs og berjast eins og hungruð ljón til síðustu sekúndu.

Íslendingar hafa aldrei átt betra og reynslumeira lið, en það sem nú er að leika á EM og eftir að hafa unnið silfrið á ÓL, eru þeir komnir á bragðið og munu gera allt sem þeir mögulega geta, til að leggja Frakkana að velli á morgun og tryggja sér þátttöku í úrslitaleiknum sjálfum á sunnudaginn.

Þetta verður erfiður leikur, en liðið hefur sýnt, að ef allt smellur saman, getur það unnið hvaða lið sem er, enda orðið eitt af þeim  bestu í heiminum.

Þjóðin mun standa sem ein sál með liðinu á morgun og hvernig sem fer, verða þetta "strákarnir okkar" áfram.  Hvað sem gerist á morgun, er liðið orðið öruggt um sæti á heimsmeistaramótinu á næsta ári og þá verður skemmtunin og ánægjan, sem liðið hefur veitt löndum sínum endurtekin.

ÁFRAM ÍSLAND.


mbl.is EM: Óbreyttur leikmannahópur Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samræma málflutninginn

Ólafur Ragnar Grímsson, notar aðstöðu sína til hins ýtrasta til að ræða stöðu Íslands og Icesave málið í erlendum fjölmiðlum, t.d. í útsendingum ýmissa sjónvarpsstöðva, sem sérhæfa sig í fréttaflutningi um allan heim.  Fáir, ef nokkrir, af framámönnum þjóðarinnar, hafa rætt við jafn marga og útbreidda fjölmiðla og hann, þannig að málflutningur hans fer miklu víðar, en annarra.

Það er vægast sagt óheppilegt, að forsetinn og ráðherrarnir skuli ekki tala máli, þegar þeir eru að ræða Icesavemálið við erlenda fjölmiðla, því ráðherrarnir tala ekki um annað en að Íslendingar "muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar", án þess að útskýra nokkurn tíma í hverju þær ættu að vera fólgnar.

Lágmarkskrafa ætti að vera, að þessir aðilar samræmdu málflutning sinn, þannig að allir aðilar töluðu sömu röddu um málið, en rugluðu það ekki, með misvísandi yfirlýsingum, eftir því hver er að tala hverju sinni.

Einu "alþjóðlegu skuldbindingarnar" af Íslands hálfu var að stofna Tryggingasjóð innistæðueigenda og fjárfesta og ef sá sjóður þarf að taka lán, til að standa við sínar skuldbindingar, þá er það hans mál, en ekki íslenskra skattgreiðenda.

Bretar og Hollendingar greiddu Icesave innistæðueigendum meira en sjóðnum bar skylda til að tryggja og verður það að vera á þeirra ábyrgð.  Einnig lánuðu þeir tryggingasjóðnum fyrir hans hluta og eiga því forgangskröfu í þrotabú Landsbankans, að upphæð 20.807 Evrur á hvern innistæðueiganda, en ekki fyrir umframgreiðslum sínum.

Svavarssamningurinn gefur þeim þó jafnstæða kröfu á tryggingasjóðinn fyrir umframgreiðslunum og því er óvíst að eignir Landsbankans dugi fyrir kröfum beggja og Svavari og Steingrími J., fannst þá bara sjálfsagt að láta íslenska skattgreiðendur þræla fyrir þessum aukakröfum og það með háum vöxtum.

Íslendingar hafa staðið við allar "alþjóðlegar skuldbindingar" varðandi Icesave og um það eiga ráðamenn þjóðarinnar að sameinast í málflutningi sínum.


mbl.is Ólafur Ragnar ræðir stöðu Íslands við fjölda fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli vinstri grænir skilji þetta?

Vöruskiptajöfnuður síðasta árs var um 87,2 milljarðar króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands.  Þetta er líklega algert met, því vöruskiptajöfnuður hefur verið lítill, sem enginn, undanfarna áratugi og ekki hægt að reikna með svo miklum afgangi í framtíðinni, þegar efnahagslífið og kaupmáttur almennigs tekur við sér að nýju, nema ný og öflug útflutningsfyrirtæki bætist við hérlendis á næstunni.

Ekki er líklegt að hægt verði að auka verulega við fiskveiðar á næstu árum og því enn mikilvægara að flýta uppbyggingu annarra atvinngugreina, svo sem iðnaðar og þá sérstaklega stóriðju.

Fram kemur að:  "Iðnaðarvörur voru 48,2% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða. Verðmæti iðnaðarvara var 26,5% minna á árinu 2009 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% minna en á sama tíma árið áður."

Álverð var tiltölulega lágt á heimsmarkaði á síðasta ári, en hefur farið mjög hækkandi undanfarnar vikur og því er tími til kominn að vinstri grænir fari að tala af virðingu um þessa aðalútflutningsgrein landsins og hætti skemmdarverkum sínum gegn frekari uppbyggingu í greininni.

Allur sá gjaldeyrir, sem fæst út úr þessum vöruskiptajöfnuði, dugar ekki til greiðslu vaxta og afborgana af Icesave einu saman á næstu árum og eru þá allar aðrar vaxtagreiðslur og afborganir þjóðarbúsins af erlendum skuldum eftir og enginn gjaldeyrir til fyrir þeim.

Vinstri grænir og aðrir verða að skilja það, að efling útflutningsatvinnuveganna er nauðsynlegasta efnahagsaðgerðin sem þarf að ráðast í og verður að hafa forgang á allt annað næstu árin.


mbl.is Vöruskiptin hagstæð um 87,2 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Augu beinast að þjóðaratkvæðagreiðslu, sem aldrei verður haldin

Írska dagblaðið Irish Times birti viðtal við Ólaf Ragnar, forseta, og segir í framhaldi af því, að allra augu muni beinast að Íslandi, vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, sem boðuð hefur verið 6. mars n.k.

Forsetinn gerir sitt besta, til þess að útskýra málið fyrir blaðamanninum, ólíkt því sem ráðherralíki ríkisstjórnarnefnunnar hafa gert, enda vilja þeir enga þjóðaratkvæðagreiðslu og gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til þess að flauta hana af.

Síðasta áróðursbragð Steingríms J. var, að fresta yrði atkvæðagreiðslunni, svo kjósendur hefðu tíma til að lesa og melta skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, en lét þess ógetið hvers vegna hann sagði strax í fyrravor, að engan tíma mætti missa og Alþingismenn yrðu að samþykkja Icesave lögin strax, því hver einasti dagur væri svo dýrmætur.  Ekki var talin nokkur einasta ástæða fyrir þingheim, að bíða niðurstöðu skýrslunnar, til þess að sjá hvort hún varpaði einhverju nýju ljósi á aðdraganda málsins, eins og Steingrímur J. segir nú, að þjóðin þurfi að vita, áður en hún ákveður sig í málinu.

Þessi frestshugmynd er eingöngu sett fram til vara, ef ekki skyldi takast að ná einhverri smávægilegri breytingu á samningnum við Breta og Hollendinga, sem hægt væri að nota til að afturkalla lögin og setja ný, lítið breytt, í þeirri von, að fosetinn synji nýjum breytingarlögum ekki staðfestingar. 

Vegna þessa, er Steingrímur J. nú að draga formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks með sér í teboð hjá fjármálaráðherrum kúgunarlandanna, með það í huga að fá þá til að taka þátt í afnámi þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Augun, sem hvíla á þjóðaratkvæðagreiðslunni mega ekki blikka, því þá verður búið að slá hana af.


mbl.is Allra augu á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt opið og gegnsætt, eins og áður

Formenn þriggja stjórnmálaflokka eru nú í opinni og gagsærri sendiferð fyrir þjóðina og eins og venjulega, í anda "allt uppi á borðum", er ferðin háleynileg og ekkert gefið upp um tilganginn.

Athygli vekur, að hvorki formaður né varaformaður Samfylkingarinnar skuli vera með í för og ekki einu sinni utanríkisgrínari ríkisstjórnarnefnunnar, en líklega skýringin á því að hann er ekki með, er sú, að honum er ekki treystandi fyrir erlendum samskiptum.

Hvort þetta bendir til klofnings milli stjórnarflokkanna á eftir að koma í ljós, en vitað er að Samfylkingin vill alls ekki rugga Icesave-bátnum, en skiptar skoðanir eru innan VG um málið og grunnt á því að upp úr sjóði milli manna, þar í flokki.

Sagt er að þessi sendinefnd eigi ekki að semja um eitt eða neitt, aðeins heilsa upp á ónafngreinda útlendinga, en engin skýring finnst á því, hvers vegna mennirnir notuðu ekki síma, en það er hentugt tæki til að spjalla við fólk.

Sendlarnir koma heim á morgun, en líklega ekki skýra frá neinu um ferðina, í sönnum anda opinnar og gagnsærrar stjórnsýslu.


mbl.is Utan til funda vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar fögnuðu láni

Íslendingar gátu loksins fagnað láni, ekki frá Norðmönnum, heldur gegn þeim í æsispennandi leik, sem tryggði  "strákunum okkar" þátttöku í undanúrslitum á EM í handbolta.

Íslenska liðið spilaði ekki sinn besta leik, en þó var sigurinn aldrei í hættu, þó Norðmenn berðust eins og ljón, til að reyna að koma í veg fyrir að íslenska liðið næði lengra á mótinu.

Jafnvel þó Norðmenn haldi að sér höndum með lán til Íslendinga, til að létta róðurinn í efnahagsuppbyggingunni eftir hrunið, þá lék lánið a.m.k. við þá í leiknum, enda varð þeim ekki að ósk sinni, um að koma íslensku strákunum út úr keppninni.

Norðmenn eru lánlausir á öllum sviðum.


mbl.is Ísland í undanúrslit á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svandís hringsnýst

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðfrú, hefur nú snúist "á einu augabragði", eins og kallinn sagði, í málefnum orkuöflunar á Suðurnesjum, með því að falla frá sameiginlegu umhverfismati allra þátta, sem viðkoma framkvæmdum fyrir væntanlegt álver Norðuráls.

Með snúningum sínum hefur henni samt tekist hluti ætlunarverksins, sem var að stöðva framkvæmdirnar, sem þó tókst ekki, en með hringlinu hefur henni tekist að tefja framkvæmdirnar og þar með haldið fleirum á atvinnuleysisskrá, en annars hefði verið.

Þar sem Skipulagsstofnun stóð í lappirnar og hélt sér við lög og reglur í málinu, neyddist Svandís til þess að hætta skemmdarstarfi sínu gagnvart þessari framkvæmd og vonandi verður þetta til þess, að hún hætti allri skæruliðastarfsemi gegn bráðnauðsynlegri atvinnuuppbyggingu.

Vonandi drífa yfirvöld líka í því, að ganga frá samningum vegna gagnaversins á Miðnesheiði og fari að gera það, sem í þeirra valdi er, til að koma einhverri hreyfingu á atvinnumarkaðinn.

Það er að verða komið eitt og hálft ár frá hruni og ekki eftir neinu að bíða.


mbl.is Ekki í sameiginlegt mat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frændur eru frændum verstir

Samkvæmt norðurlandasamningum eiga íbúar allra norðurlandanna að eiga rétt til búsetu í hverju norðurlandanna fyrir sig, með að mestu sömu réttindi og skyldur og ríkisborgarar landanna.

Upp á síðkastið hefur hins vegar fjölgað tilfellum þar sem yfirvöld, sérstaklega í Svíþjóð og Danmörku, hafa tekið upp á því, að reka norðurlandabúa úr landi, vegna þess að þeir hafi ekki næg tengsl við búsetulandið.

Um nokkur mál í Danmörku er sagt í fréttinni:  "Málið snýst meðal annars um þungaðar konur í námi, einstaklinga sem hafa skilið eða eru í atvinnuleit og giftir eru Dönum. Mörg þessara mála eiga það sameiginlegt að einstaklingarnir sem um ræðir hafa fengið félagslega aðstoð í dvalarlandinu."

Það virðist því ekki vera næg tengsl við dvalarlandið, að vera giftur ríkisborgara þess, til viðbótar því að vera norðurlandabúi.  All virðist þetta byggjast á því að norrænu velferðarstjórnirnar vilja enga velferð fyrir aðflutta norræna vini.  Löndin eru þó full af innflytjendum frá hinum ýmsu heimsálfum, sumir eru meira að segja múllar, sem predika hryðjuverk gegn sínu eigin gistilandi, en er samt sem áður ekki vísað á burt.

Frændur eru frændur vestir, er oft sagt og virðist vel eiga við um þetta.


mbl.is Norrænum ríkisborgurum vísað úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er einn milljarður á milli vina?

Vinirnir Pálmi í Fons og Jón Ásgeir í Bónus, hafa í gegnum tíðina brallað ýmislegt smálegt saman í fjármálasukkinu og einn og einn miljarður á milli þeirra vina hefur aldrei þótt sérstakt umræðuefni.

Í ágúst 2008 tilkynnti Pálmi að hann hefði slegið Íslandsmet í gróða, þegar hann seldi Jóni Ásgeiri, vini sínum og félaga, nokkur fyrirtæki, sem Jón Ásgeir borgaði svo vel fyrir, að Pálmi græddi hvorki meira né minna en áttatíu milljarða króna á þeim eina "díl". 

Þess vegna er undarlegt að sjá, að Pálmi skuli hafa "gefið" Jóni Ásgeiri, vini sínum og félaga, einn milljarð króna, með tólf felufærslum í bókhaldi sínu, um svipað leiti og hann var að græða af honum áttatíu milljarða.

Sumir vegir eru órannsakanlegir, en Sérstakur saksóknari og Eva Joly reyna að fá einhvern botn í viðskiptavegi þessara og annarra "kaupsýslumanna" og vonandi villast þau ekki á þeim þrautavegum.

En Pálmi í Fons og Jón Ásgeir í Bónus, sitja á vegkantinum, sýna lýðnum fingurinn og fá svo einfaldlega felldar niður tugmilljarða skuldir, til þess að geta haldið fyrirtækjunum "sínum" eftir sem áður.

Eins og ekkert hafi í skorist sjá bankarnir um að Pálmi haldi Iceland Express og Jón Ásgeir Baugi.

Það er vegna þess, að bankarnir vilja aðeins skipta við aðila, "sem njóta fyllsta trausts".


mbl.is Stór krafa á Jón Ásgeir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband