Þeir sletta skyrinu, sem eiga það

Sigmundur Ernir, þingmaður Samfylkingar, leyfir sér á viðkvæmum tíma, að hæðast að og ögra VG með því að láta í það skína, að ekkert mál sé að fylla skarð Vinstri grænna í ríkisstjórninni, ef þeir hunskist ekki til að hlýða Samfylkingunni í einu og öllu, eins og þeir hafa reyndar gert fram að þessu.

Nú, þegar Ögmundi blöskrar yfirgangurinn, lætur Sigmundur Ernir hafa þetta eftir sér:  "Hann segir það svo að eining innan VG skeri úr um áframhaldandi stjórnarstamstarf, náist ekki eining þurfi stjórnin á stuðningi að halda „Þá finnst mér það eðlilegasti kosturinn að halla sér að þeim sem eru næstir okkur í pólitík,“ segir Sigmundur og segir áframhaldið verða að koma í ljós."

Ekki útskýrir hann hverjir standi næst Samfylkingunni í pólitík, aðrir en VG, sem Samfylkingarmenn hafa, fram að þessu, haldið fram að væri besti vinur aðal.  Spurning hvort þarna sé átt við Hreyfinguna eða Framsóknarflokkinn, sem reyndar hefur verið harðasti andstæðingur Icesacesamningsins.

Svo klikkir Sigmundur Ernir út með því að hæðast að Ögmundi, með eftirfarandi orðum:   „Við héldum að hann væri orðinn skólaðri í pólitík en þetta.“ 

Þetta segir nýliði á þingi, sem hefur enda oftast hagað sér sem slíkur.


mbl.is Stendur og fellur með VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ætli þeir líti ekki til Evrópusinnanna í Sjálfstæðisflokknum til að mynda minnihlutastjórn varinni af Evrópusinnum í öðrum flokkum.

Héðinn Björnsson, 30.9.2009 kl. 15:56

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Nei, heldurðu að Samfylkingunni muni takast að kljúfa fleiri flokka en VG? 

Axel Jóhann Axelsson, 30.9.2009 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband