Hvað hefur ESB að bjóða?

Össur, utanríkisgrínari, segir að Ísland hafi margt að bjóða ESB, svo sem kunnáttu til að stjórna fiskveiðiauðlindum, heilbrigði matvæla, nýtingu jarðvarma  og jafnvel eitthvað fleira.

Allt þetta geta Íslendingar boðið Evrópuríkjunum og öðrum sem áhuga hafa á, án þess að ganga í ESB.  Íslendingar eru aðilar að Evrópska efnahagsvæðinu og geta boðið fram alla sína aðstoð þar og auk þess er hægt að selja slíka þekkingu til hvers sem hafa vill, ekki síst ef Ísland væri utan ESB.

Þetta er því sami blekkingarleikurinn og sá, að halda því fram að Íslendingar fengju ódýrari matvæli og lægri vexti af lánum, eingöngu með inngöngu í ESB.

Carl Bildt tók undir með grínaranum, starfsbróður sínum, og til viðbótar gat hann þess að Ísland myndi veita ESB aðgang að norðuslóðum, en sá aðgangur verður sífellt verðmætari, t.d. vegna siglingaleiða, auðlinda o.fl.  Ekki síst vegna þessara framtíðarhagsmuna leggur ESB áherslu á að ná að innlima Ísland í stórríki framtíðarinnar.

Bildt lét þess hins vegar algerlega ógetið, hvaða hag Íslendingar hefðu af inngöngunni, umfram hagsmunina af Evrópska efnahagssvæðinu.

Það hefði verið viðkunnanlegra, ef þeir félagar hefðu a.m.k. látið líta út fyrir að hagur Íslands væri í fyrirrúmi.

 


mbl.is Össur: Ísland hefur margt að bjóða ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband