Vilja ekki borga Icesave

Helstu rök ríkisstjórnarinnar fyrir samþykkt ríkisábyrgðar á Icesave skuldum Landsbankans, eru þau, að annars verði Ísland útilokað frá samfélagi þjóðanna og enginn muni vilja eiga viðskipti við Íslendinga og hvað þá lána þeim einn einasta dollar, eða evru, í framtíðinni.  Enda er því haldið fram, að enginn vandi sé fyrir almenning á Íslandi að taka að sér að greiða þetta, því hér verði svo mikill hagvöxtur og vöruskiptajöfnuður við útlönd á næstu áratugum. 

Allir vita að þetta eru falsrök og samþykkt ríkisábyrgðarinngar eingöngu rándýrt meðmælabréf með aðildarumsókn að ESB.  Líklega er búið að fá vilyrði frá ESB um að sambandið kaupi Ísland inn í ESB með loforði um að yfirtaka Icesave skuldirnar, gegn aðgangi að auðlindum Íslands.

Þegar aðildarsamningur Íslands að ESB mun liggja fyrir, verður hann kynntur þannig, að íslenska þjóðin geti ekki hafnað honum, því með honum munum við losna undan Icesave og eins og allir muni þá eiga að vita, þá geti Íslendingar alls ekki borgað, enda hafi verð gerð mistök við útreikningana.  Þar til viðbótar munu Icesave rökin verða endurvakin, þ.e. að Íslendingar geti ekki fellt aðild að ESB, vegna þess að þá verði Íslandi útskúfað úr samfélagi þjóðanna og enginn muni vilja eiga viðskipti við Íslendinga, hvað þá lána þeim einn einasta dollar og hvað þá evru.

Svona mun málflutningurinn ganga aftur og meira að segja systurflokkur flokks Angelu Merkel í Þýskalandi er strax búinn að sjá í gegnum þetta, enda segir í fréttinni:  "Markus Ferber, leiðtogi CSU á Evrópuþinginu segir að Evrópusambandið geti ekki bjargað Íslandi út úr efnahagskreppunni. "

Bragð er að þá barnið finnur.

Íslendingar þurfa að fara að skilja, að þeir verða að bjarga sér sjálfir, hér eftir sem hingað til.


mbl.is Andsnúnir inngöngu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Þetta er nákvæmlega það sem ég er búinn að tala um í marga mánuði.

Einhver Markus Ferber ræður engu þarna um, því að auðvitað er búið að samþykkja þetta sem lausn á Icesave deilunni. ESB veit að vissu leyti upp á sig skömmina í því máli, þar sem málið er að mörgu leyti tilkomið vegna stórgallaðrar ESB löggjafar.

Ég held að Markus ætti að tala við Angelu Big Mama áður en hann fer eitthvað að gaspra. Menn skulu ekki halda að Samfylkingin - með hjálp sósíaldemókrata á Norðurlöndunum - sé ekki búin að tryggja stuðning Þjóðverja, Frakka, Breta, Ítala, Hollendinga, Spánverja og Pólverja vegna inngöngu í ESB.

Menn láta ekki hafna umsókninni og ef að svo fer er Samfylkingin búin í pólitík!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 18.7.2009 kl. 10:32

2 Smámynd: Guðmundur Eyjólfur Jóelsson

Nei Markus ræður engu um það eða einhver annar ræður því hvort við göngum í ESB ,og hvað með það þó búið sé að afla stuðnings annarra þjóða ,það erum við fólkið i landinu sem höfum síðasta orðið ,þegar kemur að því að velja um hvort við viljum eða viljum ekki ganga í ESB eftir að sá samningur sem gerður verður, verður lagður fyrir þjóðina ,ekki vera með það bull að þjóðin muni ekkert með það að gera ,því það er krafa frá ESB um að þjóðin ráði því hvort hún vilji ganga í ESB eða ekki ,svo hefur verið við allar þjóðir því ætti það að vera öðru vísi fyrir Íslendinga .

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson, 18.7.2009 kl. 10:57

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Guðbjörn, þú hefur verið mjög öflugur hér á blogginu og afar gagnlegt að lesa þín skrif.  Auðvitað er búið að tryggja þessa aðildarumsókn í bak og fyrir með leynimakki, t.d. varðandi Icesave.  Það verður öllum brögðum beitt af hálfu Samfylkingarinnar til að ljúga samningnum inn á þjóðina.

Guðmundur, það er sagt að þjóðin muni hafa síðasta orðið um inngöngu í ESB.  Því var ekki mótmælt hér að ofan, hinsvegar var verið að benda á, hverskonar rök muni verða notuð, til að troða því ofan í kjósendur, hvers vegna þeir muni alls ekki geta hafnað samningnum.

Reyndar á þjóðaratkvæðagreiðslan einungis að vera ráðgefandi fyrir Alþingi, ekki bindandi.  Það fer því eftir þingmeirihluta, þegar þar að kemur, hverning sú "ráðgjöf" þjóðarinnar verður notuð.

Axel Jóhann Axelsson, 18.7.2009 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband