Aldrei að víkja

Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar í Kópavogi, sérstaklega fulltrúar Samfylkingarinnar, með eindregnum stuðningi fjölmiðla og almennings, unnið að því að hrekja Gunnar Birgisson úr starfi bæjarstjóra og nú síðast úr bæjarstjórn, á meðan rannsókn fer fram á viðskiptum Lífeyrissjóðs Kópavogs við Bæjarsjóð Kópavogs.

Nú hefur komið í ljós að Flosi Eiríksson, fulltrúi Samfylkingar, og Ómar Stefánsson, fulltrúi Framsóknarflokksins, bæði í bæjarstjórn og í stjórn lífeyrissjóðsins, höfðu allar upplýsingar um að viðskipti lífeyrissjóðs og bæjarsjóðs væru umfram það, sem löglegt er.  Þetta hafa þeir báðir viðurkennt, en þykjast ekki hafa vitað allt um málið.  Sem stjórnarmönnum bar þeim að vita allt um þessi viðskipti, enda benda tölvupóstar til þess að svo hafi verið.

Það stórmerkilega er, að hvorki fjölmiðlar né almenningur krefst þess að þessir menn víki, á meðan á rannsókn málsins stendur.  Það væri alveg eðlilegt og ekki síst þar sem þeir kröfðust brottfarar Gunnars úr sínum stólum.

Flosi og samfylkingarfélagar hans kyrja núna sönginn:  Fram, fram fylking, aldrei að víkja.


mbl.is Vilja ekki tjá sig um póstinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í fréttinni segir m.a.

„Ég hitti Hjalta endurskoðanda hér niðri áðan og sagði honum frá þessu. Hann er hræddur um að þeir birtist og heimti að skoða bókhaldið á þessu ári og þá erum við í vanda.“. Hefði hann sem endurskoðandi ekki átt að segja "þið getið ekki gert þetta!"

Hver er þessi Hjalti endurskoðandi? Var hann að endurskoða sjóðinn og um leið taka þátt í að fella hlutina fyrir eftirlitsaðilum? Mér finnst að fjölmiðlar mættu skoða þetta draga fram ef rétt er.

Er það þess vegna sem Gunnar Birgis var fúll að fá Deloitte í að skoða viðskiptinn milli kópavogs og dóttur sinnar þar sem hann hefur ekki það fyrirtæki og starfsfólk í vasanum? Vildi hann fá "sinn" endurskoðanda í málið því hann er svo hjálplegur?

Maðurinn á götunni.

Maðurinn á götunni (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband