Er Árni Páll fær um að fara að eigin ráðum?

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, hefur nú boðað að hann ætli að skipa sér í hóp hinna fjögurra flokksfélaganna sem berjast munu um formannsembættið seinnihluta maímánaðar.  Í síðustu formannskosningu sigraði Árni Páll með eins atkvæðis mun, þ.e. eingöngu með sínu eigin atkvæði og verður spennandi að sjá hve stórt hvert hinna fimm flokksbrota verður að kosningunum loknum.

Árni Páll hefur farið í fylkingarbrjósti þeirra þingmanna sem lengst hafa gengið undanfarið í rógi og svívirðingum um félaga sína á þingi og stundað málþóf um ekki neitt í stað þess að ræða þau málefni sem fyrir þinginu liggja og þurfa afgreiðslu við, þjóðfélaginu til heilla og framfara.

Ekki er langt síðan að Árni Páll sendi samflokksfólki sínu afsökunarbréf vegna lélegs gengis Samfylkingarinnar í skoðanakönnunum og algjöru vantrausti yfir 90% þjóðarinnar á störfum hans sjálfs og flokksins.

Í bréfinu sagði Árni Páll m.a:  "Við höfum nefnilega sem hreyfing og samfélag ítrekað misst af tækifærinu til að axla sameiginlega ábyrgð á mistökum, en frekar kosið að fórna einstaklingum til að koma öðrum í skjól. Ingibjörg Sólrún baðst afsökunar á sínum hlut. Sú afsökunarbeiðni átti að vera okkur fagnaðarefni og tækifæri til að auðvelda flokknum að takast á við mistök í þeirri ríkisstjórn. Í staðinn var sú afsökunarbeiðni nýtt sem syndakvittun fyrir aðra. Flokkurinn tók ekki félagslega ábyrgð á prófkjörum sem hann hafði efnt til, heldur fórnaði Steinunni Valdísi einni. Framgangan í Landsdómsmálinu og fórn Steinunnar Valdísar hafa skilið eftir djúp sár um alla okkar hreyfingu og sáð fræjum efasemda um að við séum samhent sveit sem axli saman félagslega ábyrgð á mistökum sem við gerum saman. Ég hef oft sagt að Samfylkingin þurfi sjálf að vera gott samfélag, ef hún ætlar að breyta samfélaginu til góðs. Það er alveg nóg af upphrópunum, yfirgangi og afarkostum í daglegri umræðu í samfélaginu í dag og við eigum ekki að tileinka okkur þá samskiptahætti. Við þurfum að breyta því hvernig við tölum hvert við annað. Við þurfum að tala betur hvert um annað, verja hvert annað og sýna að við séum gott og eftirsóknarvert samfélag. Ef sótt er að forystufólki í flokki og enginn kemur því til varnar, upplifir þjóðin það sem skilaboð um sundurlausan flokk sem ekki sé treystandi."

Fram til þessa hefur Árni Páll ekki getað farið sjálfur eftir heilræðum sínum og áskorunum um almenna mannasiði í samskiptum við annað fólk.  Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort hann nái að temja sér að fara að eigin ráðum á næstunni.

Hér með skal efasemdum lýst um að honum muni takast það.


mbl.is Árni Páll gefur áfram kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Heill og sæll Axel

Ef Árni Páll tæki upp á því að breyta eftir því sem hann sagði, samanborið við tilvitnun þína í bréf hans til Samfylkinga hér að ofan, myndi andrúmsloftið í stjórnmálaumræðunni svo sannanlega verða betra og myndi hann sópa að sér atkvæðum hvaðanæva að. Það þarf hins vegar kjark og þor til sem ég veit ekki hvort hann á til, en vonandi. Ef hann tekur frumkvæðið og ryður brautina verða stjórnmálin manneskjulegri og eftirsóknarverðari.

Það væri óskandi að hann tæki af skarið og yrði málefnalegur á þingi, sýna andstæðingum sínum jafnt sem samherjum virðingu og gjalda sannmælis í allri umræðu. Ef hann færi þannig að er ég viss um að hann yrði endurkjörinn formaður SF með yfirburðum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 28.4.2016 kl. 21:14

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég er þeirrar skoðunar að þó svo að Árni Páll yrði kurteysin uppmáluð, þá kemur það ekki til með að bjarga honum.

Árni Páll hefur ekkert breytt stefnu sinni og sagði á Útvarp Sögu að hann mundi ekki fara í samstarf með öðrum flokkum nema að samstarfsflokkarnir væru á sömu stefnu og hann, það er að halda áfram með ESB umsóknina og taka upp evru.

Jammm, batnandi mönnum er bezt að lifa og ég vona að Samfylkingarflokkurinn taki upp sömu stefnu og Árni Páll í Evrópumálefninu  og gjaldmiðlamálefninu.

Lengi lifi Samfylkingin, húrra, húrra, húrra.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 29.4.2016 kl. 04:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband