Þingmenn sýni þjóðinni þá virðingu að hætta fíflagangi í þingsal

Það er ótrúlegt að fylgjast með því hvernig þingmenn á Alþingi óvirða þjóðina sem kaus þá til þingsetunnar og þingið sjálft með fíflagangi og þvargi þingfund eftir þingfund, undir liðnum "Störf þingsins".

Oftast virðast þetta vera sömu þingmennirnir sem stunda þennan ljóta og ómerkilega leik til að tefja og trufla eðlileg þingstörf og getur varla nokkuð annað en athyglissýki ráðið för, nema um sé að ræða hreina skemmdarfýsn og tilraun til að skaða sjálft lýðræðið í landinu.

Málþóf er hægt að fyrirgefa í einstaka undantekningartilfellum þegar stór deilumál eru til umfjöllunar í þinginu, en að stunda svona vinnubrögð dag eftir dag, viku eftir viku og mánuð eftir mánuð, er algerlega siðlaust og þeim sem þau ástunda til skammar sama hvaða stjórnmálaflokki viðkomandi tilheyrir.

Eina vörn þeirra þingmanna sem skömm hafa á þessum vinnubrögðum er að yfirgefa þingsalinn á meðan á vitleysunni stendur og sýna smámennunum í þingmannahópnum með því fyrirlitningu og koma þeim á þann hátt í skilning um að slíkt háttarlag verði ekki þolað lengur.

Þjóðin á skilið að þingmenn sýni henni lágmarksvirðingu í þakkarskyni fyrir atkvæðin.


mbl.is „Er hann að éta köku“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki enn búið að ala mannskapinn upp?

Hefur það bara gleymst......

Anita Holm (IP-tala skráð) 13.10.2015 kl. 21:17

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Foreldrunum mistókst uppeldið og nú fær þjóðin að gjalda fyrir það............

Jóhann Elíasson, 14.10.2015 kl. 08:49

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það væri vissulega betra að svo gerðist  sem vænst er í fyrirsögn.  En það er líkast til borin von við ríkjandi kerfi nema með afli gegn afli. 

Þó gæti verið til önnur leið, sem væri að samþykkja að aldrei verði fleiri flokkar á þingi en þrír.  Án tillits til fjölda flokka við kosningar.

Án venjulegrar heimsku og kjánaskapr þyrfti væntanlegta galdra að svo gagn gæti orðið. 

Hrólfur Þ Hraundal, 14.10.2015 kl. 22:08

4 identicon

Jahhá, það er bara svona!  Kom þessi romsa líka þegar þáverandi stjórnarandstöðuflokkar voru í málþófi nánast allt síðasta kjörtímabil, eða á þetta bara við um þessa vondu vinstriflokka?

Og hvar er forsætisráðherrann?  Af hverju vill hann ekki "taka umræðuna" um verðtrygginguna?

Skúli (IP-tala skráð) 18.10.2015 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband