Hroki og valdníðsla ESB afhjúpuð enn og aftur

ESB sveik gerða samninga um svokallaða IPA-styrki á haustdögum árið 2013 þegar stjórnendur stórríkisins væntanlega skelltu öllu í lás varðandi þau verkefni sem samið hafði verið um að unnin yrðu af ýmsum stofnunum og félagssamtökum hér á landi með styrkjum frá ESB.

Samningarnir voru gerði í framhaldi af umsókn Össurar og Steingríms J. um inngöngu ESB (í nafni Íslands) og þóttist ESB í framhaldi af því vera bæði göfuglynt og örlátt með því að bjóða fram styrki til hinna og þessara verkefna, sem pótintátar sambandsins og "þeirrar norrænu" héldu að yrðu til að kaupa aukinn stuðning íslensks almennings við innlimunarferlið.

Hvergi við samningsgerðina var sagt eða skrifað að samningarnir um þessi verkefni væru háð innlimunarferlinu sem slíku og þó upp úr því trosnaði myndi þessi samvinna aðila halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. Auðvitað kom svo annað á daginn þegar á reyndi.

Ekki þarf að taka mark á andstæðingum innlimunarinnar í ESB þegar sagt er að engu sé að treysta sem frá því apparati kemur, enda yfirgangurinn og valdhrokinn alkunnur.  Meira að segja Umboðsmaður ESB er harðorður í garð húsbænda sinna þegar hann skammar þá eins og hunda fyrir svikin og segir m.a. í umsögn sinni um háttarlagið, eða eins og fram kemur í viðhangandi frétt:  "Fer umboðsmaður­inn hörðum orðum um fram­göngu fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar í mál­inu. Um óá­sætt­an­lega stjórn­sýslu sé að ræða sem hafi grafið und­an orðspori henn­ar og Evr­ópu­sam­band­inu í heild."

Bragð er að þá barnið finnur, segir í gömlum íslenskum málshætti og á hann vel við í þessu sambandi.


mbl.is ESB braut gegn samningnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband