Bringan beruð á Austurvelli í þágu hugarfarsbreytingar

Þann 13. júní n.k. verður framin óvenjuleg bylting á Austurvelli, en þá munu konur frelsa geirvörtur sínar í eitt skipti fyrir öll og munu væntanlega í framhaldi af því ganga um götur og torg berar að ofan þegar þeim sýnist.

Uppákoman kemur þeim nokkuð á óvart, sem undanfarna áratugi hafa stundað sólarlandaferðir og jafnvel bara sundlaugarnar í Reykjavík að sumarlagi, en á þeim stöðum hefur kvenfólk verið ófeimið við að liggja í sólbaði bert að ofan og sumstaðar jafnvel allsnaktar.

Brjóstabyltingin á Austurvelli hefur þó þann æðri tilgang að útrýma hefndarklámi, sem oft hefur falist í því að birta myndir af fyrrverandi kærustum eða vinkonum mismunandi mikið nöktum á Internetinu í einhverjum hefndartilgangi og til að lítillækka stúlkurnar.

Auðvitað á það að vera sjálfsagt mál að konur geti í góðu veðri gengið um eins klæðalitlar og karlmenn gera án þess að mál sé úr því gert og ef þessar aðgerðir verða til þess að ungar stúlkur hætti að vera feimnar vegna líkama síns og ekki síður ef tilgangi hefndarklámsins verði útrýmt, þá er svona bylting eingöngu af hinu góða.

Vonandi hefur karlpeningurinn vit til að styðja kvenfólkið í þessari byltingu og þeir eldri reyni að kenna þeim yngri almenna mannasiði í umgengni við konur.


mbl.is Geirvörturnar frelsaðar á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hingað til hafa karlmenn ekki mikið verið að amast við því að konur beri sig á almannafæri. En einhverjar stelpubjánar hafa núna bitið það í sig að þeim hafi alla tíð verið bannað af einhverju ímyduðu feðraveldi að sýna á sér brjóstin.

Það er að vaxa úr grasi heil kynslóð kvenna sem virðist hafa þann eina metnað í lífinu að leika fórnalamb.  Sama hvað hlaðið er undir rassgatið á þeim gera þær ekki annað en að væla, eins og prinsessan á bauninni.  Ekki gef ég mikið fyrir þessar stelpuskjátur þegar þær þurfa að horfast í augu við alvöru erfiðleika í lífinu.

Þá ætti öllum að vera ljóst að íslenskir karlmenn geta ekkert lært af íslensku kvenfólki í almennri kurteisi.

Bjarni (IP-tala skráð) 6.6.2015 kl. 08:50

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Svo rann 13. júní upp og byltingin var fullkomnuð á Austurvelli eins og boðað hafði verið.  Væntanlega verða karlar og konur berar að ofan í sólböðunum á Austurvelli og annarsstaðar í framtíðinni, eins og á sjálfan byltingardaginn:  http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/06/13/snyst_um_ad_senda_skommina_burt/

Axel Jóhann Axelsson, 13.6.2015 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband