Lágkúra eða ennþá meiri lágkúra?

Árni Páll Árnason, formaður og ef til vill fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, talaði stórkarlalega í setningarræðu sinni á Landsfundi Samfylkingarinnar og lét eins og hann og flokkur hans hefði lausnir á öllum vandamálum þjóðfélagsins og myndi leysa þau fljótt og vel, bara ef hann og flokkurinn kæmust umsvifalaust í ríkisstjórn.

Árni Páll hlýtur að vera búinn að gleyma því að Samfylkingin sat í síðustu ríkisstjórn í heilt kjörtímabil og gegndi sjálfur ráðherraembætti í þeirri stjórn án þess að koma einu einasta máli í framkvæmd, sem hann segir nú að bráðnauðsynlegt sé að koma í verk núna og reyndar þó fyrr hefði verið.

Samkvæmt meðfylgjandi frétt sagði Árni Páll m.a. um setningarræðuna: "Að mati Árna þarf að hækka húsa­leigu­bæt­ur, fjölga íbúðum til leigu og draga úr svim­andi háu leigu­verði. „Þess vegna þurfa leigu­tekj­ur af einni íbúð að vera skatt­frjáls­ar fyr­ir ein­stak­linga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðal­verði,“ sagði Árni. „Við þurf­um að þróa kerfi viðbót­ar­lána til að gera ungu fólki og tekju­lág­um fjöl­skyld­um kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­fylk­ing­in ætl­ar að tryggja öll­um hús­næði á sann­gjörn­um kjör­um.“"

Ekki virðist hann hafa látið þess getið hvernig hann ætlar að galdra fram allar þessar leiguíbúðir þó hann segi að enginn tími sé til þess að bíða eftir því að þær verði byggðar.  Undanfarin ár hefur Árni Páll og félagar í Samfylkingunni gagnrýnt Framsóknarflokkinn harðlega fyrir loforðið um 90% lán af kaupverði íbúða, en lofar nú að "þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu  fólki og tekjulágum" að kaupa sína fyrstu íbúð.  Þetta er auðvitað ekki útskýrt neitt nánar frekar en aðrir frasar í ræðunni.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður, ásamt unglíngahreyfingu Samfylkingarinnar og Reykjavíkurfélagi flokksins hefur lýst yfir stríði gegn Árna Páli og býður sig fram gegn honum í formannsstólinn.  Í farteskinu hefur hún jafnvel enn óljósari og klisjukenndari frasa en andstæðingurinn, enda vita hvorki flokksmenn né aðrir um hvaða skýjaborgir frambjóðendurnir eru að tala.

Allt bendir því til að Samfylkingunni verði á næstunni stjórnað með mikilli lágkúru í málflutningi eða ennþá meiri lágkúrú.


mbl.is „Við getum ekki bara beðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Unglingahreyfingin hefur ekki treyst sér til að lýsa yfir stuðningi frú Sigríðar, og enga sérstaka fagnaðar bylgju hef ég fundi af framboði hennar en það getur hafa farið fram hjá mér.  En sorrý mér finnst þessi tvö engir þungaviktar menn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2015 kl. 18:21

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Í formannskosningunni voru þau bæði vegin og léttvæg fundin.  Þvílík niðurlæging fyrir flokkinn.

Axel Jóhann Axelsson, 20.3.2015 kl. 21:42

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki við öðru að búast held ég. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2015 kl. 21:54

4 Smámynd: Jón Sveinsson

Það er ekki hægt að skíra orð Árna páls fir en Jón Íngi Gæsusson hefur komentað en hvar felur hann sig núna nei ég segi bara svona

Jón Sveinsson, 20.3.2015 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband