Björgunarsveitirnar og þjóðin

Þjóðin getur treyst því að björgunarsveitir landsins séu reiðubúnar til aðstoðar við hvaða aðstæður sem er, í hvaða veðri sem er, hvaða hætta stafar að fólki, fénaði eða fasteignum og hvort sem sú hætta er á láði eða legi.

Þetta sannast áþreifanlega einmitt á þessum sólarhring og þeim næsta, enda von á versta veðri sem á hefur skollið í langan tíma.

Rekstur björgunarsveitanna er gríðarlega kostnaðarsamur þrátt fyrir að allir félagarnir séu boðnir og búnir til að mæta í hjálparaðgerðir nánast fyrirvaralaust og það í sjálfboðavinnu. Til að fjármagna starfsemina treysta sveitirnar að stórum hluta á flugeldasölu í kringum áramót og þurfa að reiða sig á að þau viðskipti gangi vel og skili góðum hagnaði í kassann.

Ýmsir einkaaðilar hafa um mörg undanfarin áramót reynt að raka til sín skjótfenginn gróða með flugeldasölu og jafnvel auglýst starfsemi sína á þann hátt að auðvelt er að rugla þeim saman við sölustaði björgunarsveitanna.

Enginn annar en björgunarsveitirnar munu bregðast við til aðstoðar á hættustundu og því ber þjóðinni að kaupa sína áramótaflugelda af sveitunum og öðrum ekki.

Árið um kring treystir þjóðin á Landsbjörgu. Landsbjörg treystir á þjóðina um áramótin.


mbl.is Hættustigi lýst yfir á stóru svæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

satt, þessar sveitir eru blómi þjóðarinnar!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.12.2012 kl. 21:25

2 Smámynd: Suzanne Kay Sigurðsson

They are heroic in their efforts, deserve all the support they can get. I am not a firework fan but will gladly purchase from them.

Suzanne Kay Sigurðsson, 28.12.2012 kl. 22:05

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég flutti til Patreksfjarðar um miðjan ágúst á þessu herrans ári 2012. Fékk vinnu við kennslu og á hér heilan her af ættingjum.

Hef aldrei upplifað slíkt kvöld, eins og í kvöld. Vindurinn er stormur og íbúarnir hér rólegir og vanir svona ofsaveðri, en ekki ég!

Langar í framhaldi af lofi mínu á björgunarsveitir landsins, bæta við Vestfirðingum. Hér býr fólk , sem er vant ýmsu, sem íbúar höfuðboragrsvæðisins , eða evrópu kynnast aldrei, en það er til dæmis ég.

Ég er fædd og uppalin á höfuðborgarsvæðinu og hef búið í Króatíu, Danmörku, og Hollandi, en aldrei lent í svona ofsaveðri og með svona rólegu fólki eins og hér á Patreksfirði!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.12.2012 kl. 01:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband