Undarlegt að nokkur skuli undrast svik ríkisstjórnarinnar

Samtök álfyrirtækja gerðu skriflegan samning árið 2009 við ríkisstjórnina um fyrirframgreiðslu tekjuskatta og tímabundinn raforkuskatt, sem falla skyldi niður eftir að árið 2012 yrði liðið í aldanna skaut.

Nú er komið í ljós að ríkisstjórninni dettur ekki í hug að efna samninginn frekar en aðra samninga sem hún hefur gert á valdatíma sínum, hvort heldur sem er við verkalýðshreyfinguna eða atvinnurekendur.

Svona samviskulaus er ríkisstjórnin þrátt fyrir að Steingrímur J. hafi ítrekað árirð 2010 að við samninginn yrði staðið, en það gerði hann til þess að blekkja Alcan til stækkunar álversins í Straumsvík.

Samál er líklega eini aðilinn á Íslandi og þó víðar væri leitað sem ennþá er undrandi á því að ríkisstjórnin svíki þá samninga sem hún gerir. Jafnvel þá sem eru skriflegir.


mbl.is Ríkið svíkur samning við stóriðjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í hverju liggja svikin? Árið 2012 er ekki liðið.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 29.9.2012 kl. 09:28

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Hefur þú, V., verið erlendis undanfarin ár og ekkert fylgst með gangi mála hér á Fróni? Varðandi þennan tiltekna samning, sem átti að renna út í árslok 2012 og þar með hinn tímabundni skattur, þá eru komin fram fjárlög fyrir árið 2013 og þar er gert ráð fyrir þessum sköttum áfram. Það eru samningssvik og auðvitað algerlega í samræmi við svikasögu þessarar voluðu ríkisstjórnar.

Axel Jóhann Axelsson, 29.9.2012 kl. 10:38

3 identicon

Rétt, ég hef ekki fylgst með fjárlögum ríkisinns, enda til lítils og þakka ég upplýsingarnar.

Aftur rétt, hef búið erlendis, samfellt í 23 ár og er ekki á leiðinni til baka.

Hér er, að öllu leyti, margfallt betra að vera.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.9.2012 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband