Kannski hefur Steingrímur J. líka lært eitthvað

Steingrímur J. segir að lykilatriðið í björgun efnahagslífsins á Íslandi eftir bankahrunið 2008 hafi verið snögg viðbrögð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde með setningu Neyðarlaganna og skiptingu bankakerfisins upp í "nýja" banka og "gamla".

Í grein sinni í Financial Times segir Steingrímur m.a: "Á Íslandi hafi innistæðutryggingakerfið verið sambærilegt við önnur Evrópulönd og reynst lítilmegnugt við hrun bankakerfisins. Alþingi hafi með setningu neyðarlaganna veitt innistæðueigendum forgang yfir aðra kröfuhafa og það hafi reynst lykilatriði til að komast út úr kreppunni. Neyðarlögin tryggi að allir kröfum allra innistæðueigenda hafi verið eða verði mætt að fullu, umfram lágmarkið sem Evrópusambandið setur."

Steingrímur J. gerði allt sem í hans valdi stóð á fyrstu mánuðum valdatíma síns í ríkisstjórn til að gera lítið úr Neyðarlögunum og jafnvel að eyðileggja tilgang þeirra, t.d. með hinum ömurlega Svavarssamningi um Icesave, en til allrar lukku tókst almenningi að koma í veg fyrir þær áætlanir í tvennum þjóðaratkvæðagreiðslum.

Eins og sjá má af grein Steingríms J. virðist hann sjálfur hafa lært heilmikið af aðgerðum ríkisstjórnar Geirs H. Haarde, eigin mistökum og forsögn íslensku þjóðarinnar varðandi Icesave.  Nú ráðleggur hann öðrum Evrópuþjóðum að læra af aðgerðum Geirs og hans samstarfsfólks frá árinu 2008.

Batnandi manni er best að lifa, segir gamalt máltæki og á það vel við nú sem áður. 


mbl.is Evrópa geti lært af Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Ansi hefur þú mikla tiltrúa á manninum. Bjartsýni þinni deili ég hins vegar ekki :-(

Það sem kjósendur verða að passa sig á er að það skiptir engu máli hvað stjórnmálamenn segja, það sem öllu skiptir er hvað þeir gera. Steingrímur er búinn að reka ríkissjóð með um 200 milljarða halla þau ár sem hann var fjármálaráðherra og það fé þarf auðvitað að greiða til baka. Þessir 200 milljarðar verða mun fleiri því skuldir þarf að borga til baka með vöxtum.

Ætli Steingrímur reki eigið heimili eins og hann rekur ríkissjóð? Ætli Steingrímur komi eins fram við fjölskyldu sína og hann kemur fram við kjósendur sína?

Helgi (IP-tala skráð) 25.8.2012 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband