Steingrímur skuldar skýringar og útreikninga

Steingrímur J., alsherjarráðherra, hefur lýst því yfir að hann efist um útreikninga Deloitte á áhrifum nýjustu skattabrjálæðistillagna sinna á sjávarútveginn, en fyrirtækið hafði gefið út að áætlun ráðherrans jafngilti 105% skattheimtu á hagnað útgerðarinnar.

Steingrími J. dugar ekki að gaspra út í loftið vegna þessarra útreikninga Deloitte, heldur ber honum skylda til að birta athugasemdir við niðurstöðuna, lið fyir lið, og hrekja þannig útkomuna, ef hann og sérfræðingar hans hafa áreiðanlegri upplýsingar í sínum fórum.

Ekki bara sjávarútvegurinn, heldur almenningur allur, bíður eftir að ráðherrann uppfylli þá skyldu sína að birta sína útreikninga um áhrif veiðileyfaskattabrjálæðisins.


mbl.is Niðurstöður Deloitte ekki keyptar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þú ert brattur Axel Jóhann að búast við að Steingrímur, heigullinn sem óttast sannleikan meira en dauðan, svari þér til gagns.

Hrólfur Þ Hraundal, 6.4.2012 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband