Ríkisstjórnin féll, en náði að rísa upp á hnén

Kristrún Heimisdóttir, núverandi og fljótlega fyrrverandi aðstoðarmaður Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur verið innsti koppur í búri Samfylkingarinnar frá stofnun hennar og hefur því ýmistlegt séð og heyrt þar innanbúðar í gegn um tíðina.

Enginn getur því efast um að lýsing hennar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar, sem fram fór í gærkvöldi, er sönn og rétt og mat hennar sé óbrigðult, þegar hún lýsir því að ríkisstjórnin hafi í raun fallið á fundinum og formennska Jóhönnu sé nú aðeins til málamynda fram á vorið.  Eftirfarandi lýsing Kristrúnar af fundinum er algerlega sláandi: 

"Klukkan hálf níu var svo komið að forysta og ríkisstjórn væru að falla á fundinum líka og fór um marga föla fyrirliða. Það þurfti ræðu Árna Páls til bjargar og höfðu þó allar hvellandi básúnur Össurar og annarra sjálfskipaðra yfirkonfrensráða glumið yfir salinn og hótunum verið beitt á jafnt á ungliða sem eldri borgara. Tillaga um aukalandsfund í vor til kjörs á nýrri forystu hlaut afgreiðslu. Ný forysta verður væntanlega kosin í vor. Þá kemur flokksstjórn aftur saman í janúar til að krefjast stefnu og stjórnfestu í stað fyrirhugaðs mánaða flöskustúts á Arnarhóli um á hvaða ráðherrum í hlutastörfum og hvernig ýmis helstu þjóðarhagsmunamál lendi s.s. efnahags- atvinnu-, auðlinda- og nýsköpunarmál."

Jóhanna og Steingrímur sögðu bæði að hrossakaup undanfarinna daga hafi ekki bara styrkt flokkana sjálfa, heldur ríkisstjórnina sjálfa og því meiri sem deilurnar væru innan flokkanna og á milli þeirra, því sterkari yrði ríkisstjórnarsamstarfið.

Þessar yfirlýsingar þeirra sýna best hversu gjörsamlega raunveruleikafirrt þetta fólk er orðið og að enn brýnna sé að skipta um fólk í brúnni.  Það á ekki eingöngu við um stjórnarflokkana heldur ríkisstjórnina sjálfa.

Því fyrr sem slíkar breytingar verða, því betra verður hvort tveggja fyrir þjóðina. 


mbl.is Ríkisstjórnin og forystan nær fallin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver hlustar á Kristrúnu Heimisdóttur? Allaveganna ekki ég. Þá má lesa aðrar lýsingar af þessum fundi, t.d. Lúðvíks Júlíussonar (sjá slóðina fyrir neðan).

Allt bendir til þess að ríkisstjórnir verði rammefld eftir þessar hrókeringar og það er nákvæmlega það sem þjóðin vill.

Jón Bjarnason og Bjarni Harðarson voru farnir að minna okkur nokkuð glannalega á vinina Don Quixote og Sancho Panza. Nóg af vindmyllum í Brüssel. Hver var Dulcinea del Toboso í kolli Jóns, veit ég hinsvegar ekki, en vissulega ekki Jóhanna Sigurðardóttir.

 

http://ludvikjuliusson.blog.is/blog/ludvikjuliusson/entry/1214395/

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 31.12.2011 kl. 11:34

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Allt bendir til þess að ríkisstjórnir verði rammefld eftir þessar hrókeringar og það er nákvæmlega það sem þjóðin vill.

Rangt Mér virðist það sem meirihluti þjóðarinnar vill er að losna við þessa ríkisstjórn, og sérstaklega forystu hennar þ.e. Jóhönnu, Össur og Steingrím sem ekki njóta lengur trausts. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.12.2011 kl. 13:45

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Haukur, Kristrún Heimisdóttir veit nákvæmklega hvað hún syngur þegar kemur að Samfylkingunni, enda verið þar innsti koppur í búri frá stofnun flokksins. Hún er vönduð manneskja, sem ekki er vön að fara með fleipur. Slíkt er ekki hægt að segja um marga félaga Samfylkingarinnar.

Það sést vel á myndbandi, sem sýnt var á DV.is, hvernig skapið var í ýmsum forystumönnum Samfylkingarinnar á þessum flokksstjórnarfundi.

Axel Jóhann Axelsson, 31.12.2011 kl. 15:22

4 Smámynd: Ragnhild H. Jóhannesdóttir

Ef við missum þessa rikisstjórn i AÐ gefa eftir markrilveiðarnar á fundi núna þann 20 jan  til að liðka fyrir inngöngu i ESB  og sagt er ekki sist vera ástæða þess að Jóni Bjarna var sagt upp starfi ,þar sem hann gæti orðið þröskuldur i götu fyrir þvi...... þá getum við gleymt þessu ...þá er taflið tapað .... En Jón hefur vitað að  gæti hann staðið i veginum yrðu þessi ESB má lsett til hliðar i bráð 1........OG SVO KEMUR FORSÆTISRÁÐHERRA  OG FLYTUR ÁRAMÓTA ÁVARP ,   og ætlast til að fólk brosi og hneygi sig ..þvi allt er svo skinandi ROSALEGA GOTT !!

Ragnhild H. Jóhannesdóttir, 31.12.2011 kl. 20:49

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já í hvaða heimi lifir Jóhanna?  Ég var agndofa yfir þessari ræðu hennar.  Orð og gjörðir fara enganveginn saman. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.12.2011 kl. 20:51

6 Smámynd: Rafn Guðmundsson

jé jé - og BULLIÐ heldur áfram. horfið þið aldrei 1-2 daga áfram eða er það bara 'stundin'

Rafn Guðmundsson, 1.1.2012 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband