Sleppur út "á besta aldri"

Samkvæmt norskum lögum er ekki hægt að dæma ómennið Breivik nema í tuttuguogeins árs fangelsi verði hann ákærður fyrir hryðjuverk, en a.m.k. 76 manns létu lífið í sprengjuárás hans í Osló og skotárásinni á unglingana á Utöya.

Ræddur er sá möguleiki að ákæra á þeim grundvelli að um glæp gegn mannkyninu hafi verið að ræða og þá gæti hámarksrefsing orðið þrjátíu ára fangelsisdómur.

Hvernig sem ákært verður mun þessi viðbjóður ganga laus aftur meðal manna þegar hann verður um sextugt, eða ennþá á "besta aldri". Það er lítið tilhlökkunarefni fyrir samfélagið að vita af slíkum fjöldamorðingja lausum á nýjan leik.

Svona verknað hefði maður haldið að enginn myndi fremja, nema sá sem væri svo alvarlega andlega bilaður, að hann teldist eiga að vistast á öryggisgeðdeild til æviloka og án nokkurs möguleika á að fá að leika lausum hala á meðal manna á ný.


mbl.is Hámark 30 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  • Í þessu samhengi væri fróðlegt að fá að vita hvernig fangelsisár er reiknað í Noregi. Manni er sagt að hér á landi sé fangelsisárið rétt innan við 230 dagar. Hermt er að í fangelsisári séu bara taldir "vinnudagar", þ.e. fimm daga vinnuvika og að auki dregnir frá þeir dagar, sem alla jafna falla á virka daga, s.s. jóladagarnir, nýjársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, annar í páskum, uppstigningardagur, annar í hvítasunnu, 17. júní og fyrsti mánudagur í ágúst. Hefur þú upplýsingar um þetta, Axel?

Sebastian (IP-tala skráð) 26.7.2011 kl. 09:02

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Nei, mér er ekki kunnugt um hvernig þetta er reiknað út, en fangar munu ekki afplána nema 2/3 af dæmdum refsivistartíma, hvernig sem sú regla hefur verið hugsuð.

Axel Jóhann Axelsson, 26.7.2011 kl. 11:49

3 identicon

Í Noregi er möguleiki á að hafa hann inni ævilangt, fyrst fær hann 21 (eða 30)ár í fangelsi og síðan er bætt við öryggisgæslu sem hægt er að framlengja til 10 ára í senn, eins oft og þurfa þykir.

Hann á vonandi aldrei eftir að sleppa út.

Larus (IP-tala skráð) 26.7.2011 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband