Orðlaus

Í fyrsta sinn í langan tíma verður maður orðlaus. 

Fyrstu tölur frá Reykjavík eru að mörgu leyti svolítið undarlegar, en gefa örugglega nokkuð rétta mynd af því hvernig úrslitin verða.

Fyrstu viðbrögð er tilfinning skammar og niðurlægingar Reykjavíkur og íbúa hennar.

Jóni Gnarr og félögum skal hér með óskað til hamingju með vel heppnaða leiksýningu, sem greinilega hefur náð til áheyrenda.


mbl.is Fyrstu tölur í beinni á mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott á þig

Polli (IP-tala skráð) 29.5.2010 kl. 22:42

2 identicon

Sæll Axel, Hanna Birna hefur staðið sig frábærlega og því vil ég  bara segja þetta:

" Þú veist ekki hvað þá átt hefur fyrr en misst hefur". 

Og svo  vona  ég bara að hann Jón Gnarr  standi sig.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.5.2010 kl. 23:14

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Polli, sjálfsagt er þetta gott á mig, en ég efast um að þetta sé það sem Reykjavík á skilið.

Rafn, algerlega sammála þér, bæði um Hönnu Birnu og missinn, einnig verður maður að vona, að Jón Gnarr og félagar setjist núna loksins niður og fari að setja sig inn í málefni borgarinnar og nái að standa sig vel, áður en yfir lýkur.

Axel Jóhann Axelsson, 29.5.2010 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband