Beiskur drykkur og baneitraður

Steingrímur J. upplýsti félaga sína í VG á flokkstjórnarfundi, að ofríki Breta og Hollendinga byggðist ekki á lagalegum grunni, væri óréttlátt og hrein kúgun, en betra væri að drekka þann drykk, en deyja úr þorsta.

Drykkurinn er vissulega beyskur, en það sem er verra, er að hann er eitraður og leiðir til dauða á skömmum tíma.  Þá vaknar sú spurning, hvort ekki sé eins gott að deyja strax úr þorsta, frekar en kveljast af eitrinu og þola langvarandi og kvalafullan dauðdaga.

Stæðu menn frammi fyrir þeim afarkostum að láta hengja sig, eða kvelja til dauða, myndu flestir velja henginuna.


mbl.is Betra en að deyja úr þorsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert enn við sama heigarðshornið. Bullar bara ábyrgðarlaust

Sævar (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 20:58

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Sævar minn, klukkan er orðin margt, svo þú verður að fara að sofa strax og mamma verður búin að hita pelann þinn.

Axel Jóhann Axelsson, 15.1.2010 kl. 21:04

3 identicon

Því miður liggja hagsmunir Steingríms, Jóhönnu, Breta og Hollendinga ekki saman við hagsmuni íslensku þjóðarinnar.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 21:46

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Axel ég gét ekki verið meira samála þér!

Sigurður Haraldsson, 15.1.2010 kl. 23:47

5 Smámynd: Sigurjón

Þessi ,,Sævar" kann ekki einu sinni að stafa ,,heygarðshornið"...

Sigurjón, 16.1.2010 kl. 02:25

6 identicon

Núna heitir beiskur drykkurinn ICESAVE sem leiðtoginn Steingrímur J. vill að fólkið innbyrði upp á hans ábyrgð eins og hann hefur ítrekað beðið um að fá að bera.  Afar heimskuleg samlíking að líkja óþverra og eða eiturdrykkju við þann vanda sem þjóðin stendur fram í fyrir.  Háttur kjaftaska er að halda fram heimskulegum hlutum.

Árið 1978 innbyrði sértrúarflokkur í Gvæjana eftir skipun leiðtoga síns beiskan drykk sem kallaðist COOL AID, og á sína ábyrgð.

2 kjaftaskar sem breiða út dómsdagsspár ef þeim er ekki fylgt í blindni.  2 beiskir en ólíkir drykkir sem leiðtogar heimta að fylgismenn innbyrði vegna traust á gáfur þeirra og gjörvuleika.  Aðeins annar þeirra hefur verið svo ósmekklegur að nýta sér linnulaust að samlíkingu óþverradrykks til að reyna að heilaþvo fylgismenn og þjóðina með hræðsluáróðri sínum. 

Flestir vita hvernig óþverradrykkurinn fór hjá þeim sem innbirtu hann 1978.  ICESAVE óþverradrykkurinn eins og klúðrið heitir í dag, er blandaður af Steingrími J. og hans ríkisstjórn.  Hann skulu landsmenn drekka hvað sem það kostar.  Áhrifin verða ekki jafn skelfileg og 1978, en nógu skelfileg samt.

http://www.youtube.com/watch?v=SSRKWb4LO3w

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 15:07

7 Smámynd: Auðun Gíslason

Niðurstöður frá 2008 sem Bjarni Ben studdi ásamt öllum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins!

Flokksformennirnir semja og semja hver við annan!  Og segjast sumir þeirra hafa góða trú á, að Hollendingar og Bretar fáist að samningaborðinu.  Stjórnarandstöðunni tókst með lýðskrumi að þvinga ríkisstjórnina í viðræður við sig.  Að þeim takist hið sama með Breta og Hollendinga má með réttu efast um.  Hollendingar og Bretar hafa enga þörf fyrir að semja við Íslendinga uppá nýtt.  En Íslendingar verða í mikilli klemmu verði enginn samningur um málið gildur!

„...en ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að Evrópusambandið hefði átt að standa miklu nær viðræðuferlinu," sagði Bjarni. Bjarna má benda á samning sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði 16. nóvember 2008 við ESB. Þar voru lagðar línurnar um samningana, hin umsömdu viðmið. Ríkjunum var svo látið eftir að semja um smáatriðin. Í Viljayfirlýsingu Íslands og AGS 9. grein kemur einnig fram sama afstað. Bjarni Ben hefur endurtekið í sífellu, að samningurinn frá í haust sé ósanngjarn og að engin ríkisábyrgð gildi um innistæðutryggingar. Samt greiddi Bjarni einmitt atkvæði sitt tillögu um ríkisábyrg á innistæðum í íslenskum bönkum á Evrópska efnahagssvæðinu haustið 2008.

AGS hefur verið gagnrýndur fyrir þá afstöðu sem hann tók til endurskoðunar áætlunarinnar um endurreisnina eftir að ÓRG vísaði lögunum til þjóðarinnar.

 Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri undirrituðu Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 

Í níundu grein þeirrar yfirlýsingar stendur orðrétt:

„Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar." (15. nóvember 2008). 

Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB.

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær. (16. nóvember 2008).

Auðun Gíslason, 16.1.2010 kl. 19:43

8 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Auðunn, maður er nánast agndofa yfir því, að nokkur einasti Íslendingur skuli reyna að mæla yfirgangi, hótunum og þvingunum Breta, Hollendinga, ESB, AGS og norðurlandanna bót. 

Nánast allt, sem þú ert að reyna að réttlæta, hefur verið hrakið hér á þessu bloggi, ennþá betur á mörgum öðrum bloggum, blaðagreinum innanland og utan, en samt á að berja hausnum við steininn og halda áfram að þjóna erlendu kúgunarvaldi.

Þú ættir að lesa betur 1. liðinn í umsömdu viðmiðunum, sem þú birtir sjálfur hér að ofan:

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Þegar þú verður búinn að leggja þetta vel á minnið, skaltu lesa tilskipun 94/19EB og setja að því loknu inn nýja athugasemd, þar sem þú bendir á kaflann sem tekur til ríkisábyrgða á tryggingasjóðum innistæðueigenda.

Axel Jóhann Axelsson, 16.1.2010 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband