Nú veltur allt á norðurlöndunum

Enn á ný heldur Mark Flanagan, fulltrúi AGS á Íslandi, því fram að Icesave komi efnahagsáætlun Íslands hjá AGS ekkert við, svo lengi  sem fjármögnun áætlunarinnar sé í lagi.  Þetta hefur hann sagt áður, en þá kom einnig fram, að það væru norðurlöndin sem settu þau skilyrði fyrir lánveitingum sínum, að Íslendingar gengju Bretum og Hollendingum á hönd, sem þrælar til áratuga.

Norðurlöndin hafa reynt að mótmæla þessu í öðru orðinu, en staðfesta það í hinu, þannig að afstaða þeirra hefur verið frekar óljós.  Ríkisstjórn Íslands virðist hins vegar vera ótrúlega áhugasöm um að sannfæra þjóðina um, að allt fari lóðbeint norður og niður hérlendis ef ekki verði gengið að ítrustu kröfum þrælakúgaranna.

Nú þurfa íslensku ráðherrarnir og stuðningsmenn þeirra innan þings og utan, að ganga til liðs við þjóðina og standa með henni í baráttunni fyrir sanngjarnri endurskoðun samninganna við Breta og Hollendinga og hætta að reyna að hræða íslendinga með sífelldu svartnættisrausi.

Samstaða er það sem þarf að sýna inn á við og út á við, ef árangur á að nást til hagsbóta fyrir þjóðina.

Ríkisstjórnarnefnan á að vera þjóðinni til hvatningar, en ekki til óþurftar á örlagatímum.


mbl.is AGS: Icesave ekki skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Björn Valur í frjálsu falli?  Steingrímur með fýlusvip er hins vegar kominn með fallhlíf...með fóstbróður sínum Franek.

Danmörk og Noregur munu ekki setja okkur stólinn fyrir dyrnar, ef almenningur þar fær réttar upplýsingar héðan.

Beggja skauta byr, bauðst mér ekki fyrr.....Um svíana (og finnana) segi ég ekkert. 

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 5.1.2010 kl. 21:15

2 identicon

Skv. helstu fréttamiðlum Noregs, (nrk og aftenposten), danska og sænska ríkisútvarpinu eru allar líkur á að þetta muni setja lán frá Skandinavíu í biðstöðu. Ég hef búið í Noregi og það sem 2 helstu stjórnmálaleiðtogar þar, Stoltenberg og Halvorensen hafa sagt um þessi mál áður gerir mig ekki bjartsýnan um fyrirgreiðslu frá þeim bænum við núverandi aðstæður...

Árni Jóhannesson (IP-tala skráð) 5.1.2010 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband